Til eru fræ allsstaðar

25 January 2006 | Rúna

Fyrst þegar ég flutti til Berlínar kipptist ég alltaf við þegar heyrði íslenska tónlist í útvarpinu. Ég er reyndar ekki það mikil steik að hoppa hæð mína í loft upp við röddina hennar Bjarkar, en mér fannst ákaflega tilkomumikið að heyra þýskt útvarpsfólk spila Emilíönu, Sigur Rós og Gus Gus svo dæmi séu tekin. Nú er ég orðin öllu vön.

Eða það hélt ég þangað til fyrir nokkrum mínútum síðan. Ég kveikti nefnilega á útvarpinu og heyrði þá sungið “Til eru fræ”. Fyrst hélt ég að ég væri rugluð, svo hélt ég að geislaspilarinn hefði óvart farið í gang og tekið að spila disk sem ég vissi ekki að við ættum. En skjárinn á græjunum lýgur ekki: “Radio 1 – Berlin”.

Þulurinn staðfesti svo grun minn eftir lagið með setningunni: “Das war Til eru fræ mit Benní Hemm Hemm”. Með fullkomnum framburði. Íslandsáhuginn í Berlín er að ganga í gegnum áður ókunnar víddir.

1 Comment

  1. Ragnhildur said on 25 Jan 2006 at 16:08:

    Ha?? Ertu ekki að grínast?! ég myndi fríka held ég, þetta er bara magnað sko!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.