Archives for February 2006
Bollulaus
28 February 2006 | molar | 4 Comments
Það skýtur skökku við að á sama tíma og ég er þjóðlegri en nokkru sinni fyrr, er í félagi við aðra umsjónarmenn Íslendingafélagsins að skipuleggja þorrablót í Berlín, tekst mér að gleyma bolludeginum í fyrsta sinn á ævinni. Og mundi ekki einusinni eftir honum fyrr en á sprengidag…
Sjö einkenni þess að skrifa ritgerð í tímaþröng
22 February 2006 | molar | 3 Comments
1. Að gá nokkrum sinnum á dag hvort línubilið sé einfalt. Það gæti útskýrt af hverju ritgerðin er svona stutt. 2. Að gá nokkrum sinnum á dag hvort letrið sé allt of lítið. Það gæti líka útskýrt af hverju ritgerðin er svona stutt. 3. Að velja mörgum sinnum á dag “Word Count” og spyrja sig [...]
Read ‘Sjö einkenni þess að skrifa ritgerð í tímaþröng’
Flensufár
21 February 2006 | molar | No Comments
Þeir eru misstressaðir fyrir fuglaflensunni, Þjóðverjarnir. Neytendayfirvöld á okkar slóðum hafa brugðist við fárinu með því að opna „Hotline“, en eru samt ótrúlega rólegir um leið. Þessi rauði sími flensufaraldursins er bara opinn þrjá daga í viku milli 10 og 16…
Ítalafíflið
20 February 2006 | molar | No Comments
Þegar ég fór með Rúnu á ítalskan veitingastað í tilefni konudagsins var ég ekki viðbúinn slepjulegum, sísyngjandi þjóninum sem tróð endalaust uppá okkur lélegum bröndurum. Borgið þið saman eða í sitthvoru lagi? [saklaus kallinn á næsta borði svarar] Hvað segirðu, ætlarðu að borga fyrir alla! [lítur á okkur] Heyrið þið þetta? Þið ættuð að þakka [...]
„Greinamerkjasetning“ Moggans
14 February 2006 | molar | 2 Comments
Einusinni voru Þjóðverjar heimsmeistarar í notkun þess sem Victor Klemperer kallaði íróníska greinamerkjasetningu í dagblöðum. Þegar spænskir byltingarsinnar vinna sigur í orrustu, þegar þeir hafa herforingja eða herforingjaráð, þá er alltaf talað um rauðan „sigur“, rauða „herforingja“ eða rautt „herforingjaráð“. … Einstein er „vísindamaður“, Rathenau „Þjóðverji“ og Heine „þýskt“ skáld. (Victor Klemperer, LTI) Á sunnudaginn [...]
Read ‘„Greinamerkjasetning“ Moggans’
Þrammi og Sippi
12 February 2006 | molar | 3 Comments
Eftir að nágranninn fyrir ofan okkur, sem gekk undir nafninu Þrammi vegna mikilla gönguferða í tréklossum daga sem nætur, flutti út hefur verið tíðindalítið á efri hæðinni. Það er að segja þangað til fyrir nokkrum dögum, þegar nýi nágranninn hóf undarlega iðju. Á hverjum degi um sexleytið síðdegis og á sunnudagsmorgnum byrjar ljósakrónan okkar að [...]
Mótmælagleðin
11 February 2006 | molar | No Comments
Ef maður situr í kennslustofu við mikla umferðargötu á laugardagsmorgni og tekur próf, þá er auðvelt að hrósa happi of snemma þegar niðurinn af götunni þagnar. Þá getur maður allt eins átt von á því að næsta klukkutímann þrammi 30.000 mótmælendur framhjá glugganum, þenji lúðra, berji trumbur og snúi hrossabrestum. Það truflaði mig samt meira [...]
Fánabrennur
4 February 2006 | molar | 5 Comments
Svo maður haldi áfram að velta sér uppúr brennandi fánum í Mið-Austurlöndum; hvernig í ósköpunum verður fólk sér úti um fánana? Hvorki hér í Berlín, á næsta bæ við Danmörku, né uppá Íslandi hefði ég hugmynd um hvert ég ætti að snúa mér til að finna danska eða norska fána — hvað þá einhverja exótískari. [...]
Múslímarnir
1 February 2006 | molar | 5 Comments
Allur þessi hasar í kringum dönsku skopmyndirnar (sem eiga tæpast skilið að heita skop — eru ófyndnari en Sigmúnd) hefur leitt huga minn að mjög erfiðu máli, bókstaflega. Heita þessir kallar sem aðhyllast Íslam virkilega, þegar maður segir það án greinis í eintölu og nefnifalli, múslím (sbr. þessa beygingarlýsingu íslensks nútímamáls)? Mér finnst mega beina [...]