Mótmælagleðin

11 February 2006 | Andrés

Ef maður situr í kennslustofu við mikla umferðargötu á laugardagsmorgni og tekur próf, þá er auðvelt að hrósa happi of snemma þegar niðurinn af götunni þagnar. Þá getur maður allt eins átt von á því að næsta klukkutímann þrammi 30.000 mótmælendur framhjá glugganum, þenji lúðra, berji trumbur og snúi hrossabrestum.

Það truflaði mig samt meira að vita ekki hverju var verið að mótmæla. Eina sem ég sá voru rauðir borðar — sem allir hópar virðast einhverra hluta vegna nota. Mér finnst að hjá skipulagðri þjóð einsog Þjóðverjum hljóti að vera hægt að koma upp litakerfi á mótmæli. Þó það væri ekki nema bara svo fávís útlendingurinn viti hvort þeir væru á móti stríði, atvinnuleysi eða innflytjendum.

Þegar til kom voru þetta láglaunamenn að mótmæla Evrópusambandinu. Eða eitthvað þannig…

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.