„Greinamerkjasetning“ Moggans
14 February 2006 | Andrés
Einusinni voru Þjóðverjar heimsmeistarar í notkun þess sem Victor Klemperer kallaði íróníska greinamerkjasetningu í dagblöðum.
Þegar spænskir byltingarsinnar vinna sigur í orrustu, þegar þeir hafa herforingja eða herforingjaráð, þá er alltaf talað um rauðan „sigur“, rauða „herforingja“ eða rautt „herforingjaráð“. … Einstein er „vísindamaður“, Rathenau „Þjóðverji“ og Heine „þýskt“ skáld.
(Victor Klemperer, LTI)
Á sunnudaginn birtist fyrirsögn á forsíðu Moggans:
Vara við að „brjóta rétt á Írönum“
(Mbl, 12.2.2006)
Hér er vitnað í ræðu Íransforseta og gæsalappirnar virðast helst þjóna akademískum tilvitnunartilgangi — þótt þær séu frekar ónauðsynlegar.
Í dag birtist önnur fyrirsögn um Íran á forsíðu Moggans:
Íranar byrjaðir að auðga úran
(Mbl, 14.2.2006)
Hér er vitnað í samtal við ónafngreinan embættismann Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar í Vín, en Mogganum þykir ekki vanta gæsalappir til að gefa til kynna að um tilvitnun sé að ræða.
Voru þá laugardagsgæsalappirnar írónískar? Gæti verið að Mogginn sé að hita fólk upp fyrir aðgerðir (efnahagsþvinganir, innrás…) gegn Íran — einsog áróðursmálaráðuneytið vann ötullega að því að móta almenningsálitið gegn kommúnistum og gyðingum fyrir sjötíu árum?
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Andrés minn, leiðist þér?
Þá er það sannað: Andrés er Rain Man.