Sjö einkenni þess að skrifa ritgerð í tímaþröng

22 February 2006 | Rúna

1. Að gá nokkrum sinnum á dag hvort línubilið sé einfalt. Það gæti útskýrt af hverju ritgerðin er svona stutt.

2. Að gá nokkrum sinnum á dag hvort letrið sé allt of lítið. Það gæti líka útskýrt af hverju ritgerðin er svona stutt.

3. Að velja mörgum sinnum á dag “Word Count” og spyrja sig hvort það virki.

4. Að tékka á tölvupóstinum sínum oftar en góðu hófi gegnir.

5. Að tékka á öllum bloggsíðum sem manni dettur í hug og pirra sig út í fólk fyrir að vera svona latt að skrifa.

6. Að finnast mikilvægara að skrifa mola á keinbetreff en að skrifa ritgerð.

7. Að ranka við sér í eftirmiðdaginn eftir að hafa ítrekað gert atriði 1-6 og hugsa: “Djísús, þessi dagur er farinn í eitthvað rugl!”. Aftur.

3 Comments

  1. Svenni said on 26 Feb 2006 at 15:05:

    Hahahaha, ég er einmitt að reyna að druslast til að skrifa dálítið sem ég hef vanrækt, fór m.a. á keinbetreff og pirraði mig yfir að ekkert nýtt hefði verið skrifað síðan 22/2. Af augljósum ástæðum.

  2. arnar said on 5 Mar 2006 at 21:27:

    þetta er magnað. held ég hafi einu sinni þaullesið heilan árgang af Hús og Híbýli fremur en námsbækurnar fyrir e-ð prófið.

  3. harpa said on 9 Mar 2006 at 11:59:

    þetta hljómar vandræðalega kunnuglega…

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.