Archives for March 2006

Vor og krakkar

27 March 2006 | molar | No Comments

Það merkilegasta við daginn í dag er að vorið er komið með 19 gráðu hita. Engin sólarsamba hér, því dimm ský hylja vorhimininn og láta steypiregn á okkur dynja. Það aftrar samt ekki fólki frá því að sitja á stuttermabolum fyrir utan kaffihúsin milli skúra. Annað merkilegt við daginn er að ég hóf vettvangsnám í [...]

Read ‘Vor og krakkar’

Grænt, grænt, grænt

23 March 2006 | molar | No Comments

Um daginn fórum við með hópi Íslendinga á þýskan veitingastað í einu túristahverfanna í borginni. Við gátum ekki annað en skellt upp úr þegar við sáum hvað matseðillinn bauð upp á fyrir þá sem ekki borða kjöt. Fyrsti “grænmetisrétturinn” var salat með feta-osti. Svo sem í lagi fyrir flestar grænmetisætur en ekki fyrir hina svokölluðu [...]

Read ‘Grænt, grænt, grænt’

Monthani

20 March 2006 | molar | 3 Comments

Á laugardaginn tók ég stöðupróf í ensku á vegum British Council hér í borg. Prófið gekk ágætlega og ég var bara nokkuð sátt við sjálfa mig en allt annað en sátt við strákinn á aftasta bekk. Þetta var týpan sem gerir allt til að líta sem töffaralegast út í prófi, t.d. að flissa að öllu [...]

Read ‘Monthani’

Stúlkan með eldspýtuna

16 March 2006 | molar | No Comments

Okkur varð nokkuð brugðið þegar við vorum á leiðinni útá lestarstöð í gærkvöldi. Sem endranær gengum við framhjá snyrtivörubúð, en nú í fyrsta sinn stökk afgreiðslukonan út og kallaði á eftir okkur. „Gætuð þið hringt á lögregluna,“ spurði hún á milli þess að góla á blindfullan og æstan kall í búðinni. Þegar róninn sá víkingana [...]

Read ‘Stúlkan með eldspýtuna’

Unterschreiben, bitte!

13 March 2006 | molar | 3 Comments

Eftir nokkrar annir í þýskum háskóla hef ég lært að það er bara hægt að bregðast við tilheyrandi skriffinnskubrjálæði á einn hátt eigi maður að halda geðheilsunni: sætta sig við hana með jafnaðargeði. Ég verð samt að viðurkenna að ég hef þurft að taka á honum stóra mínum í lok þessarar annar. Við áttum nefnilega [...]

Read ‘Unterschreiben, bitte!’

Með sól í hjarta

12 March 2006 | molar | 5 Comments

Berlín hefur verið á bólakafi í snjó vikum saman, að því er mér virðist. Snjóflyksurnar svífa fyrir utan stofugluggann okkar allan sólarhringinn og enginn viti borinn maður stígur út fyrir hússins dyr án húfu eða vettlinga. Íslendingar í borginni eru þrátt fyrir mikla hreysti farnir að bölva þessum kulda og spyrja sig hvenær vorið fari [...]

Read ‘Með sól í hjarta’

Gúgglið

11 March 2006 | molar | 3 Comments

Af og til skoða ég skýrslu um gúgglanir sem hafa leitt fólk á keinbetreff.net. Mánaðarlega asnast tveir einstaklingar inn eftir að hafa leitað að Gísla í Uppsölum, nöfn okkar beggja koma nokkrum sinnum fyrir og Hitler skýtur stöku sinnum upp kollinum. Mér er hinsvegar fyrirmunað að skilja hvernig Google dettur í hug að benda fólki [...]

Read ‘Gúgglið’

Femínískt hestaklám

9 March 2006 | molar | 1 Comment

Sennilega var það útaf kvennadeginum í gær að mig dreymdi samrunann í nótt. Þrjú íslensk tímarit, sem þótti markaðshlutdeild sín ekki næg, ákváðu að renna saman í eitt til að ná til fleiri lesenda. Hvernig getur blaðasamruni annars klikkað ef hráefnin eru Bleikt og blátt, Eiðfaxi og Vera?

Read ‘Femínískt hestaklám’