Unterschreiben, bitte!

13 March 2006 | Rúna

Eftir nokkrar annir í þýskum háskóla hef ég lært að það er bara hægt að bregðast við tilheyrandi skriffinnskubrjálæði á einn hátt eigi maður að halda geðheilsunni: sætta sig við hana með jafnaðargeði.

Ég verð samt að viðurkenna að ég hef þurft að taka á honum stóra mínum í lok þessarar annar. Við áttum nefnilega að leita uppi alla þá prófessora sem höfðu kennt okkur á þessu misseri og láta þá kvitta undir að við hefðum mætt í tímana þeirra samviskusamlega.

Mér finnst gjörsamlega óskiljanlegt af hverju þessi formlegheit og eltingarleikur þurfa að eiga sér stað þegar það er einfaldlega hægt að leysa málið með örfáum tölvupóstum milli kennara og stjórnenda þessa blessaða náms. Ég átti til dæmis í mestu vandræðum með að ná í skottið á konunni í barneignaleyfi og manninum sem var á leið í frí til þess eins að þau gætu hripað nafnið sitt á blað. Og varla er þægilegt fyrir kennarana heldur að gera slíkt fyrir hvern einasta nemanda.

Ég náði samt að safna öllum undirskriftunum á tilsettum tíma og fór sigri hrósandi með snepilinn til ritarans fyrir helgi. Nú þyrfti ég ekki að leggja á mig klukkustundarferð upp í skóla næstu vikurnar – ég var með allt á hreinu.

Þangað til ég fékk tölvupóst frá ritaranum í dag þar sem hún bað mig vinsamlegast að mæta til hennar og kvitta sjálf undir snepilinn. Í öllum hamaganginum hafði ég nefnilega gleymt því að mín undirskrift væri sú mikilvægasta af öllum.

3 Comments

  1. sun said on 14 Mar 2006 at 14:33:

    æi…
    pappírsvesenið á þessum þjóðverjum..

  2. harpa said on 14 Mar 2006 at 22:39:

    já ég segi það með þér.. þetta er nú meiri vitleysan. ég er reyndar tossi og ekki enn búin að fá kvittanir hjá 2 af þremur. eða hjá 3 af 4? jæja.. fokk it, hlýt að geta fengið gúddvill á þetta einhvern veginn.

  3. Maggamegalúf said on 14 Mar 2006 at 23:48:

    Vorlag handa Andrési – Yes sör Ich kann boogie með hinum Finnska MA NUMMINEN – (Fékk sent frá önnu)
    S.s. bara hægri smella og velja save target as… http://nemendur.khi.is/marghuga/06YesSir_IchKannBoogie.wma

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.