Grænt, grænt, grænt

23 March 2006 | Rúna

Um daginn fórum við með hópi Íslendinga á þýskan veitingastað í einu túristahverfanna í borginni. Við gátum ekki annað en skellt upp úr þegar við sáum hvað matseðillinn bauð upp á fyrir þá sem ekki borða kjöt.

Fyrsti “grænmetisrétturinn” var salat með feta-osti. Svo sem í lagi fyrir flestar grænmetisætur en ekki fyrir hina svokölluðu “vegans”.

Í öðru lagi var hægt að panta sér salat með túnfiski.

Í þriðja lagi var salat með kjúklingabringu á boðstólnum.

Við gátum skemmt okkur yfir úrvalinu því yfir svínakjötinu og lifrinni sem við pöntuðum var ekkert að kvarta. Stráknum við hliðina á okkur, sem er einmitt “vegan”, fannst þetta hins vegar ekki jafn fyndið þar sem hann sat með engan disk fyrir framan sig og horfði á okkur hin háma í sig góðgætið.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.