Vor og krakkar
27 March 2006 | Rúna
Það merkilegasta við daginn í dag er að vorið er komið með 19 gráðu hita. Engin sólarsamba hér, því dimm ský hylja vorhimininn og láta steypiregn á okkur dynja. Það aftrar samt ekki fólki frá því að sitja á stuttermabolum fyrir utan kaffihúsin milli skúra.
Annað merkilegt við daginn er að ég hóf vettvangsnám í minni fjölmenningarlegu kennslufræði í morgun. Fyrir valinu varð leikskóli í Kreuzberg þar sem 40% barnanna eru með innflytjendabakgrunn. Þar eyði ég þessari viku, leggst svo í hýði í þrjár vikur meðan ég finn upp fjölmenningarlega leiki og mæti svo aftur í leikskólann eftir það og leik mér við börnin.
Þótt ég sé útkeyrð eftir daginn var virkilega gaman að komast í þetta gríslingaumhverfi aftur. Krakkarnir voru yndislegir þótt nokkrir þeirra væru svo frekir og óþekkir að trú mín á þýska agann er endanlega glötuð. Helsti munurinn á þessum leikskóla og þeim sem ég hef farið í á Íslandi er að hér er umhverfið ekki nærri jafn (of-)verndað. Húsakynnin eru á mörgum hæðum og það úir og grúir af tröppum sem krakkarnir ganga eftirlitslausir um og leika sér í. Ég fékk alveg illt í magann þegar ég horfði á bilið milli trappanna og þessa þrjá metra sem eru til gólfs. Sömu sögu er að segja um klettana á leikvellinum sem hraustur strákur hafði mjög gaman að stökkva af og lenda á gallhörðu steypunni langt fyrir neðan. En leikskólakennararnir fullvissuðu mig um að slys hefðu hingað til ekki átt sér stað og það myndi varla gerast úr þessu.
Ofverndunin á sér hins vegar stað á allt öðrum sviðum á leikskólum í Berlín. Eftir að hafa sötrað miður góða linsubaunasúpu í hádeginu spurði ég hvort eldhúsið sérhæfði sig í grænmetisréttum. Leikskólakennarinn svaraði að þau myndu gjarnan vilja hafa nautakjöt en vegna kúariðu væri það ekki mögulegt. Fuglaflensan kemur víst í veg fyrir kjúklingarétti og trúin á íslam bannar svínakjöt. Þá er lítið eftir nema fiskur, en þar sem hluti barnanna er hvort sem er grænmetisætur fer lítið fyrir honum.
Hápunktur dagsins var án efa strákurinn sem talaði eins og sextugur Austur-Berlínarbúi á hornknæpu og sagði fátt annað en að hitt og þetta væri svo flott að hann sprændi næstum í buxurnar. Það fannst mér fyndið.
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.