Archives for April 2006
Ekki í herinn
30 April 2006 | molar | 5 Comments
Klukkan 11:35 að staðartíma tókst flugvél Turkish Airlines á loft á leið frá Berlín til Istanbúl með Andrés Inga innanborðs. Ég á ekki eftir að sjá hann í fimm eða sex vikur. Þetta mun verða áhugaverður tími. Ég hef aldrei á ævinni búið ein, ef frá er skilin vika og vika þegar foreldrarnir fóru upp [...]
Eftirförin
26 April 2006 | molar | 4 Comments
Í um það bil tuttugu mínútur af gærdeginum átti ég “stalker”. Um hádegisbilið tók ég lestina niður í Kreuzberg, þar sem ég er að kenna krökkum að hugsa fjölmenningarlega þessa dagana. Um leið og ég kom inn í vagninn sá ég að maður um þrítugt var að gefa mér auga hinumegin við ganginn. Ég kippti [...]
Prinsinn fer til Persíu
25 April 2006 | molar | 2 Comments
Íbúar Dunckerstraße eru mismiklir áhugamenn um niðurtalningar. Ég er sá óáhugasami. Núna má ég samt til með, rétt til að monta mig, að telja niður. Innan viku fer ég nefnilega af stað í langferð, en húsfreyjan situr eftir heima og passar kotið. Áfangastaðurinn er ekki af verri endanum — hið forna veldi Persa, sem nútildags [...]
Read ‘Prinsinn fer til Persíu’
Átrúnaðargoð fundið
18 April 2006 | molar | 3 Comments
Þar sem ég ólst upp á sveitabæ voru traktorar stór hluti æsku minnar. Á flestum myndum af pjakkinum mr er ég með gular eyrnahlífar að hossast á kyrrstæðum Massanum (Massey Ferguson fyrir óinnvígða). Mér þóttu Massarnir alltaf skemmtilegir. Miklu skemmtilegri en Zetorinn sem var alltof nýtískulegur. Í uppáhaldi var samt græni, sundurryðgaði Deutzinn. Draumatraktorinn. Ég [...]
Kúkað með Kristi*
14 April 2006 | molar | 15 Comments
Þó ég stundi frekar litla tilbeiðslu um páskana hef ég tekið eftir ákveðnum atriðum sem virðast vera orðin að hálfgerðri hefð hjá mér um hátíðina. Helst er það sá siður, að vera alltaf á síðustu klósettrúllu á föstudaginn langa… *Má segja svona?
Ryk
8 April 2006 | molar | 3 Comments
Í kvöld kemur bandarísk bekkjarsystir mín í mat til okkar ásamt þýskum eiginmanni sínum. Stúlkan er með rykofnæmi. Fyrir okkur sem gestgjafa hefur þessi staðreynd bæði sína kosti og galla. Að bjóða manneskju með rykofnæmi í heimsókn gerir það að verkum að heimilið er tekið í gegn sem aldrei fyrr, rykfallin skúringarfatan dregin fram og [...]
Ferhyrnt fólk
7 April 2006 | molar | 2 Comments
Ég get ekki hætt að pirra mig á skinkunni í Þýskalandi. Hún er reyndar ekki slæm á bragðið, en einhverra hluta vegna eru sneiðarnar alltaf hringlaga með um það bil 10 sentimetra í þvermál. Nú er hvergi hægt að fá brauð sem samsvarar þessu formi, svo að ég skil ekki hvers vegna þarf að hafa [...]