Ferhyrnt fólk

7 April 2006 | Rúna

Ég get ekki hætt að pirra mig á skinkunni í Þýskalandi. Hún er reyndar ekki slæm á bragðið, en einhverra hluta vegna eru sneiðarnar alltaf hringlaga með um það bil 10 sentimetra í þvermál. Nú er hvergi hægt að fá brauð sem samsvarar þessu formi, svo að ég skil ekki hvers vegna þarf að hafa skinkuna svona í laginu. Þetta er sérstaklega hvimleitt þegar ég bý til samlokur úr fagurlega ferhyrndum brauðsneiðum, enda þarf ég þá að nota alla mína rúmfræðigáfu til að skera hverja sneið í fjórar kökur og leggja svo hornið á hverri köku í horn brauðsneiðarinnar. En einhvern veginn er það samt ekki alveg að gera sig.

Annað vandamál vekur upp spurningar um rúmfræðiskynjun Þjóðverja. Maður þarf að hafa sig allan við við að finna kodda sem eru ekki risastórir ferningar. Nú veit hver heilvita maður að mannshöfuðið er ekki ferhyrnt, en ef svo væri leyfi ég mér að efast um að það væri 80 x 80 cm að stærð.

2 Comments

  1. arika said on 8 Apr 2006 at 19:56:

    Hósíanna!

    Ég benti á þetta í ágúst 2004 í síðustu heimsókn með írónískum bröndurum um að ég væri látinn sofa með sæng undir höfðinu í stað kodda. Þjóðverjar hljóta að samanstanda af fólki sem nær eingöngu er með vatsnhöfuð-og jú kannski klumbufót.
    En til hamingju með að vera búinn að fatta þetta með koddana

  2. harpa said on 10 Apr 2006 at 10:38:

    já það eru víst “vitlausar” stærðar á meginlandinu.. amk í sumum löndum. Get ekki keypt rúmföt í Sviss því þau eru 150 á breidd í stað 140 osfrv osfrv..

    Skinkan..i feel your pain babycakes!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.