Ryk

8 April 2006 | Rúna

Í kvöld kemur bandarísk bekkjarsystir mín í mat til okkar ásamt þýskum eiginmanni sínum. Stúlkan er með rykofnæmi. Fyrir okkur sem gestgjafa hefur þessi staðreynd bæði sína kosti og galla. Að bjóða manneskju með rykofnæmi í heimsókn gerir það að verkum að heimilið er tekið í gegn sem aldrei fyrr, rykfallin skúringarfatan dregin fram og löngu vanrækt horn fá loksins athygli. Gallinn er hinsvegar sá að litla húsmóðurhjartað mitt mun aldeilis verða vandræðalegt ef gesturinn fer að hnerra í miðri máltíð.

3 Comments

  1. Dagný said on 8 Apr 2006 at 15:16:

    Úff eins gott að hún komi ekki í heimsókn til mín! Gangi ykkur vel

  2. arika said on 8 Apr 2006 at 19:54:

    Þú getur náttúrulega alltaf farið út í búð og keypt í þurri sandköku. Það reddar iðulega svona hlutum

  3. Ragnhildur said on 9 Apr 2006 at 22:49:

    úff…þú getur amk haft eins rykugt og þú vilt þegar ég kem, ég er orðin ónæm fyrir ryki eftir mitt eigið herbergi :)

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.