Átrúnaðargoð fundið
18 April 2006 | Andrés
Þar sem ég ólst upp á sveitabæ voru traktorar stór hluti æsku minnar. Á flestum myndum af pjakkinum mr er ég með gular eyrnahlífar að hossast á kyrrstæðum Massanum (Massey Ferguson fyrir óinnvígða). Mér þóttu Massarnir alltaf skemmtilegir. Miklu skemmtilegri en Zetorinn sem var alltof nýtískulegur. Í uppáhaldi var samt græni, sundurryðgaði Deutzinn. Draumatraktorinn.
Ég var að finna heimasíðu hollenskrar stúlku sem deilir aðdáun minni á Deutzum. Hún hefur tekið hana skrefi lengra. Hún ætlar að ferðast á gömlum Deutz frá Hollandi til Suðurskautsins. Um páskana dólaði hún yfir miðbaug í Afríku. Manon Ossevoort er nýja hetjan mín!
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Massey Ferguson 135 er minn uppáhalds traktor, Zetorinn hef ég aldrei fílað en Valmet er að koma sterkur inn. Aftur á móti hef ég aldrei komist í tæri við Deutz svo ég get ekki deilt þeirri aðdáun.
Veistu, ég er búin að vera með nafnið Massey Ferguson á heilanum síðan ég las þessa færlsu og það var sko alveg fyrir nokkrum dögum síðan! Það endar með því að ég fæ mér traktor, mikið yrði sonurinn þá kátur.
Hey, rúna! Buin að ætla að þakka þér fyrir bell og sebastian diskinn, fékk hann í síðustu viku, alveg æði!!! Get ekki beðið!!!