Prinsinn fer til Persíu

25 April 2006 | Andrés

Íbúar Dunckerstraße eru mismiklir áhugamenn um niðurtalningar. Ég er sá óáhugasami. Núna má ég samt til með, rétt til að monta mig, að telja niður. Innan viku fer ég nefnilega af stað í langferð, en húsfreyjan situr eftir heima og passar kotið. Áfangastaðurinn er ekki af verri endanum — hið forna veldi Persa, sem nútildags er betur þekkt sem Íran.

Þeir sem vilja taka kastið sem einkennir þá sem ég hef sagt frá þessum ferðaplönum geri það vinsamlegast núna, dragi djúpt andann og lesi svo áfram til að öðlast aftur hugarró.

Yfir Vesturlönd dynja sífellt slæmar fréttir af þessari 80 milljón manna þjóð, sem við þekkjum þó flest sáralítið. Þess vegna ætla ég að benda ykkur á frásögn af úrslitaleik í írönsku meistaradeildinni í knattspyrnu sem fór fram á dögunum. Leyfum David Mohammad Yaghoobi að hafa orðið.

Þegar Talibanar réðu Afganistan voru fótboltavellir notaðir til að gera aftökur að sýningaratriði. Íranir eru nú ekki verri en svo, að þar er fótbolti ennþá fótbolti. Og hversu vondir geta þeir þá verið?

2 Comments

  1. Linda said on 25 Apr 2006 at 09:45:

    og ekki má gleyma að þeir eru mjög framanlega í kynskiptiaðgerðum og þær kosta aðeins 3500$ sem telst heldur ódýrt

  2. David Mohammad Yaghoobi said on 9 Nov 2006 at 17:13:

    If only I could understand the writing then I might know why my name is added to the text above.

    Good luck with all.

    ddmmyyyy

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.