Ekki í herinn

30 April 2006 | Rúna

Klukkan 11:35 að staðartíma tókst flugvél Turkish Airlines á loft á leið frá Berlín til Istanbúl með Andrés Inga innanborðs. Ég á ekki eftir að sjá hann í fimm eða sex vikur.

Þetta mun verða áhugaverður tími. Ég hef aldrei á ævinni búið ein, ef frá er skilin vika og vika þegar foreldrarnir fóru upp í sumarbústað eða Andrés var eitthvað að flækjast. Ekki seinna vænna fyrir 26 ára gamla konu. Og Andrés sjálfur verður í ævintýraferðalagi um ókunnugar slóðir. Heljarinnar mánuður, þessi maí.

Þegar foreldrar mínir voru rétt undir tvítugu var pabbi í námi við Samvinnuskólann á Bifröst. Í þá daga var ekki hægt að skreppa upp í Borgarfjörð eins og ekkert væri, heldur þurfti mamma að bíða stundum mánuðum saman eftir að sjá unnusta sinn. Við mamma erum nú ekkert sérstaklega ólíkar svo ég get vel ímyndað mér að það að kveðja sinn heittelskaða hafi ekki verið í miklu uppáhaldi. En til að hughreysta hana sagði mamma hennar: “Svona, svona. Það er ekki eins og hann hafi verið sendur í herinn”. Þetta hugsaði nefnilega amma mín á sínum ungu árum þegar afi þurfti eitthvað að fara.

Fyrst þessi orð hafa hughreyst tvo ættliði, þá held ég að þau ættu líka að hjálpa hinum þriðja.

5 Comments

  1. Linda said on 30 Apr 2006 at 18:56:

    nema auðvita ef USA er í stuð og hendir nokkrum hressum sprengjum á Íran…. en varla þó.

  2. harpa said on 1 May 2006 at 10:43:

    OH.. samúðarkveðjur Rúna mín :)

  3. Anna said on 1 May 2006 at 18:41:

    Oft er vík milli vina og styrkir kærleikann!

  4. Kappinn sjálfur said on 1 May 2006 at 21:05:

    Þótt ég hafi ekki farið í herinn barðist ég fyrir bættum kjörum alþýðu og verkamanna á götum Istanbúl í dag. Heimamenn virtust reyndar heitari fyrir Maó og Marx en íslenskir fyrstamaígöngubræður þeirra, en það er víst síst til að slökkva hugsjónareldinn.

  5. Þórhildur said on 2 May 2006 at 16:26:

    Þar sem ég er einhleyp og finnst gott að vera ein, þá vorkenni ég þér ekki neitt ;) Maðurinn fæðist einn og deyr einn. En ég skal kannski koma að heimsækja þig og við getum sjoppað þar til við droppum fyrir allan enga peninginn sem ég á… nei í alvöru talað langar mig alltaf af og til að kíkja aftur til Berlínar.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.