Archives for May 2006

Af tannlæknum og vatni

31 May 2006 | molar | 2 Comments

Öðru hverju er eitthvað verið að gera við hérna við Dunckerstrasse og bæði heita og kalda vatnið tekið af húsinu í ákveðinn tíma. Í morgun átti að vera lokað fyrir vatnið til hádegis í húsinu okkar og húsinu við hliðina. Sem betur fer var það komið á fyrr, því ég átti pantaðan tíma hjá tannlækni [...]

Read ‘Af tannlæknum og vatni’

Lífið í Dunckerstrasse 12

25 May 2006 | molar | 1 Comment

Nágrannakonur mínar eru ansi hressar. Ein er alltaf að stunda kynlíf og það fer ekki framhjá neinum norðan Alpafjalla. Önnur er alltaf að rífast við karlinn sinn. Einn morguninn æpti hún svo bergmálaði í bakgarðinum, og var enn að þegar ég kom heim mörgum klukkutímum seinna. Daginn eftir grét hún voða mikið, greyið, meðan hún [...]

Read ‘Lífið í Dunckerstrasse 12’

Útskrift

24 May 2006 | molar | 3 Comments

Nei, ekki mín útskrift, heldur fjögurra bandarískra vina minna. Í gærkvöldi sat ég með tárin í augunum og horfði á vini mína, þau Ryan, Marissu, Seth og Summer útskrifast úr Harbour High. Tilfinningar þeirra voru jafn blendnar og mínar, þar sem við vissum öll að ákveðnum kafla í lífi þeirra væri lokið og alvara lífsins [...]

Read ‘Útskrift’

Allt að gerast

23 May 2006 | molar | 4 Comments

Samkvæmt dagatalinu mínu er þriðjudagur í dag en í brjósti mér er sannkallaður mánudagur. Í gærkvöldi kláraðist nefnilega langþráð og skemmtileg helgi. Tvö Eurovision-partí, Belle & Sebastian-tónleikar og síðast en ekki síst bróðurdóttir sem kom alla leiðina frá Lundúnum til að veita grasekkjunni félagsskap og halda upp á afmælið sitt í Berlín. Allt tókst þetta [...]

Read ‘Allt að gerast’

…beim Schwein

18 May 2006 | molar | 2 Comments

Á rigningardegi í Berlín er ég á leið á bókasafnið til að leigja út bækur fyrir mastersritgerðarskrif. Til að ég þurfi ekki að hanga endalaust í biðröð eftir tölvum er ég búin að eyða dágóðum tíma í að skoða vef bókasafnsins og þær bækur sem ég gæti notað. Í öllu bókaflóðinu um lýðræðislega kennsluhætti sá [...]

Read ‘…beim Schwein’

Pylsur út um allt

17 May 2006 | molar | 2 Comments

Mikið held ég að hann Andrés minn verði ánægður þegar hann kemur heim og fær að smakka nýjustu uppfinninguna hans Dr. Oetker: pizzu með Currywurst. Ég vona að hann verði ekki jafnánægður með þau tíðindi að það standi til að opna Bratwurst-safn í Thüringen. Ég er alveg til í að skella einni pizzu í ofninn, [...]

Read ‘Pylsur út um allt’

Herra Brúðgumi og Frú Teppi

16 May 2006 | molar | 3 Comments

Klukkan tólf á hádegi alla virka daga legg ég spennt við hlustir því þá er einn uppáhaldsdagskrárliðurinn minn í útvarpinu. Hlustendum er boðið að hringja í nafnasérfræðinginn Herra Udolph og grennslast fyrir um uppruna ættarnafns síns í beinni útsendingu. Herrann er nú reyndar ekki meiri sérfræðingur en svo að hann gúgglar eitthvað um nafnið og [...]

Read ‘Herra Brúðgumi og Frú Teppi’

Evróvision

15 May 2006 | molar | 260 Comments

Rétt í þessu sit ég við tölvuna (eins og glöggir lesendur hafa ef til vill þegar gert sér grein fyrir) og hlusta á útvarpið. Það er verið að spila framlag Þjóðverja til Eurovision, eða Grand Prix eins og Þjóðverjar kalla hana. Þetta er týpískt fyrir þýska tungumálið, allir titlar eru þýddir en bara ekki á [...]

Read ‘Evróvision’

Tónaflóð

10 May 2006 | molar | 1 Comment

Í gær fór ég á tónleika með hinum knáa gítarleikara, fiðlusnillingi og söngvara frá Chicago, Andrew Bird. Hann stóð sig með þvílíkri prýði og röddin hans var svo falleg að ég hef ekki heyrt annað eins síðan Jeff nokkur Buckley var og hét. Þetta eru ekki fyrstu tónleikarnir sem ég mæti á síðan Andrés fór [...]

Read ‘Tónaflóð’

Kaldir fætur

7 May 2006 | molar | 1 Comment

Áður en Andrés lagði upp í langferðina sína kom hann mér á óvart og pantaði heildarsafn sjónvarpsþáttanna Cold Feet. Þeir voru sýndir á Stöð 2 um árið og voru í miklum metum hjá okkur mömmu, sem biðum þess í ofvæni á hverju miðvikudagskvöldi að fylgjast með ævintýrum þriggja para í Manchester-borg. Og nú áttu þessir [...]

Read ‘Kaldir fætur’

Rignandi einbirni

4 May 2006 | molar | 4 Comments

Þessa dagana er ég komin á allra síðasta séns að ákveða hvað mastersritgerðin mín á að fjalla um. Það er sko alls ekki auðvelt. Ég sit fyrir framan tölvuna, vafra um á netinu og reyni að fá hugmyndir en á ósköp erfitt með að gera upp hug minn. Síðasta klukkutímann hef ég verið föst á [...]

Read ‘Rignandi einbirni’

Evrasía

3 May 2006 | molar | 7 Comments

Ferðalangurinn Andrés hringdi í mig áðan frá Istanbúl. Þá var hann í Evrópu. Klukkustund síðar hringdi hann aftur, og enn frá Istanbúl. Þá var hann samt í Asíu. Merkileg borg, þessi Istanbúl.

Read ‘Evrasía’

Fiskur – nei takk!

1 May 2006 | molar | 2 Comments

Mér hefur nú síður en svo leiðst í dag, enda búin að vera í símanum frá morgni til kvölds. Íslenskur fisksali er nefnilega búinn að hringja fjórum sinnum í mig! Í fyrsta skiptið hringdi hann í heimasímann og bauð mér fisk. Ég sagði nei takk. Í annað skiptið hringdi hann í heimasímann og ætlaði að [...]

Read ‘Fiskur – nei takk!’