Fiskur – nei takk!

1 May 2006 | Rúna

Mér hefur nú síður en svo leiðst í dag, enda búin að vera í símanum frá morgni til kvölds. Íslenskur fisksali er nefnilega búinn að hringja fjórum sinnum í mig!

Í fyrsta skiptið hringdi hann í heimasímann og bauð mér fisk. Ég sagði nei takk. Í annað skiptið hringdi hann í heimasímann og ætlaði að bjóða Andrési fisk. Ég sagði nei takk. Í þriðja skiptið hringdi hann í gemsann og bauð mér fisk. Ég sagði nei takk. Í fjórða skiptið hringdi hann í gemsann en skellti á áður en ég gat svarað. Þá hafa skilaboðin kannski verið komin í gegn.

Hversu erfitt er að skilja að mig langar ekki að kaupa íslenskan fisk? Þótt ég búi í útlöndum.

2 Comments

  1. Þórhildur said on 2 May 2006 at 16:27:

    Fisksalar eru víst upp til hópa frekar tregt fólk

  2. ragnhildur said on 5 May 2006 at 14:53:

    Var hann ódýr, þessi fiskur? ég myndi kaupa sko…

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.