Rignandi einbirni

4 May 2006 | Rúna

Þessa dagana er ég komin á allra síðasta séns að ákveða hvað mastersritgerðin mín á að fjalla um. Það er sko alls ekki auðvelt. Ég sit fyrir framan tölvuna, vafra um á netinu og reyni að fá hugmyndir en á ósköp erfitt með að gera upp hug minn.

Síðasta klukkutímann hef ég verið föst á ýmsum persónuleikaprófasíðum. Þær hjálpuðu mér ekki mikið. Ég fékk til dæmis að vita að ég væri að öllum líkindum einbirni, og ef ég væri veður þá væri ég rigning.

Þvættingur.

4 Comments

  1. sun said on 4 May 2006 at 17:38:

    Skemmtilegur þvættingur samt.
    Sakna þín…

  2. Þórhildur said on 4 May 2006 at 18:59:

    Bwahahahahaha… ég festist einmitt í svona könnunum í gær og eyddi örugglega klukkutíma í að taka þær. Hversu valdamikil ég væri, hversu mikil pæja ég væri, hversu sjálfselsk ég væri, hversu mikla reynslu af ástarmálum ég hefði (kom ekki vel út), hvaða blandaði drykkur ég væri og þar fram eftir könnunum. Þetta er versti tímaþjófur sem um getur. Hah, fyrir utan það að blogga og hanga á bloggi hjá öðrum og kommenta endalaust. ARG, mér leiðist svo mikiiiðððð. Varð bara að deila þessu mér þér.

  3. Linda said on 4 May 2006 at 20:27:

    Ég spyr bara hvar er hægt að finna þessara síður þar sem ég er að hugsa um að breytta efninu mín………

  4. ragnhildur said on 5 May 2006 at 14:57:

    Ah..persónuleikapróf, svo skemmtó!! en ég held þú hafir bara komið út sem rigning vegna þess að þú varst stressuð vegna pressu útaf ritgerðinni, og sem einbirni af því þú ert svo mikið örverpi svo það kemur næstum útá eitt ;) see, persónuleikapróf hafa alltaf rétt fyrir sér, maður þarf bara að líta á þau frá réttu sjónarhorni

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.