Kaldir fætur

7 May 2006 | Rúna

Áður en Andrés lagði upp í langferðina sína kom hann mér á óvart og pantaði heildarsafn sjónvarpsþáttanna Cold Feet. Þeir voru sýndir á Stöð 2 um árið og voru í miklum metum hjá okkur mömmu, sem biðum þess í ofvæni á hverju miðvikudagskvöldi að fylgjast með ævintýrum þriggja para í Manchester-borg. Og nú áttu þessir þættir að halda mér félagsskap í fjarveru karlsins.

Þættirnir fjalla um ást, kynlíf, afbrýðisemi og framhjáhöld, sem sagt allt sem þarf til til að gera krassandi sjónvarpsþátt. En af því að persónurnar eru svo með endemum mannlegar og yndislegar fyrirgefur maður þeim nær allt saman.

Það var að sjálfsögðu borin von að ég næði að spara mér þættina svo þeir dygðu út mánuðinn. Strax á mánudaginn var ég komin upp í þriðju þáttaröð. Seinni hluta vikunnar var ég sparsamari og í gær var loksins komið að því að horfa á síðasta þátt fimmtu og síðustu þáttaraðarinnar. Ég hafði bæði hlakkað til og kviðið fyrir, því einn af þessum vinum mínum átti eftir að hljóta svipleg endalok. Það var því ekki laust við að gripið væri til vasaklútarins á Dunckerstrasse í gærkvöldi.

Veðrið er búið að vera alveg dásamlegt í Berlín þessa vikuna. En út af Cold Feet hef ég ekki mikið verið úti að njóta blíðunnar. Nú er stúlkan komin í pils og stuttermabol og ætlar út í göngutúr. Best að nota tækifærið áður en ég byrja aftur á fyrsta þætti í fyrstu þáttaröðinni.

1 Comment

  1. ragnhildur said on 10 May 2006 at 17:30:

    já ég skil ekki af hverju þeir létu þetta enda svona hjá henni…svo illa gert!!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.