Tónaflóð
10 May 2006 | Rúna
Í gær fór ég á tónleika með hinum knáa gítarleikara, fiðlusnillingi og söngvara frá Chicago, Andrew Bird. Hann stóð sig með þvílíkri prýði og röddin hans var svo falleg að ég hef ekki heyrt annað eins síðan Jeff nokkur Buckley var og hét.
Þetta eru ekki fyrstu tónleikarnir sem ég mæti á síðan Andrés fór til Írans. Í síðustu viku fór ég nefnilega að sjá finnsku hljómsveitina Cleaning Women, sem hefur nokkra sérstöðu í tónlistarheiminum þar sem þeir spila meðal annars er á þvottagrind. Þeir tónleikar tókust líka með endemum vel.
En allt er þegar þrennt er – áður en mánuðurinn er á enda fer ég á aðaltónleikana í stóru tónleikahúsi. Þar mun Belle and Sebastian standa fyrir fjörinu og ég hlakka mikið til.
Ég held að ég hafi aldrei verið svona dugleg að sækja tónleika áður. Sannast þá hið forkveðna máltæki: “Wenn die Katze aus dem Haus ist, tanzen die Mäuse.”
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
jess jess belle og sebastian!! get ekki beeeeðið!!! og já…gaman að fá máltækið góða á þýsku….