Herra Brúðgumi og Frú Teppi

16 May 2006 | Rúna

Klukkan tólf á hádegi alla virka daga legg ég spennt við hlustir því þá er einn uppáhaldsdagskrárliðurinn minn í útvarpinu. Hlustendum er boðið að hringja í nafnasérfræðinginn Herra Udolph og grennslast fyrir um uppruna ættarnafns síns í beinni útsendingu. Herrann er nú reyndar ekki meiri sérfræðingur en svo að hann gúgglar eitthvað um nafnið og segir svo frá. En það er gaman að hlusta.

Ættarnöfn Þjóðverja eru mjög áhugaverð, því þau eiga sér oftast mikla sögu. Mörg nafnanna gefa til kynna að sá sem hafi tekið sér þau hafi kennt sig við þá iðngrein sem hann stundaði. Til dæmis þýða ættarnöfnin Bauer, Jäger, Müller og Brauer einfaldlega bóndi, veiðimaður, malari og bruggari. Ætli einhver muni heita Informatiker að eftirnafni á 21. öldinni?

Svo eru sumir sem heita eftir örnefnum. Þá er flottast að heita “von”-eitthvað. Andrés er svo hrifinn af þessum ættarnöfnum að stundum held ég að hann muni taka sér einhverja “von”-dömu fyrir eiginkonu til að geta tekið nafn hennar. Toppurinn er náttúrulega að heita “Fürst-von”-eitthvað. Agalega raffínerað.

Í skólanum er ég alltaf að hlæja að ættarnöfnum kennarana. Þar má heyra nöfn eins og Herr Bräutigam (Herra Brúðgumi), Herr Pulver (Herra Duft), Herr Oft (Herra.. já.. Oft) og Frau Schönheit (Frú Fegurð).

Hlustandinn sem ræddi við Herra Udolph í útvarpinu í dag vildi fá að vita hvað ættarnafn konu sinnar þýddi. Hún heitir Frú Teppich (Frú Teppi). Ekki furða að hún hafi tekið sér nafn manns síns við giftingu. Eftir heilmiklar vangaveltur komst Herra Udolph að niðurstöðu.

Frú Teppi á sér forföður sem var teppagerðarmaður.

Ég fíla Þjóðverja. Þeir eru svo lógískir.

3 Comments

  1. ragnhildur said on 17 May 2006 at 14:25:

    hehe, brilliant! yfirleitt er einfaldasta skýringin sú réttasta, right? :)

  2. Hrönn said on 17 May 2006 at 14:50:

    En frábært!! Mitt rétta eftirnafn hefur greinilega eitthvað farið forgörðum… ég er augljóslega Ungfrú Schönheit ;) Ég mun taka það upp héðan í frá, svo þið megið fara að kalla mig Ungfrú Fegurð.

  3. Stebbi said on 24 May 2006 at 15:49:

    Ég þekki menn með eftirnöfnin Fax og Fuck. Það er líklega ekki gaman fyrir þann síðarnefnda að ferðast í enskumælandi löndum.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.