…beim Schwein
18 May 2006 | Rúna
Á rigningardegi í Berlín er ég á leið á bókasafnið til að leigja út bækur fyrir mastersritgerðarskrif. Til að ég þurfi ekki að hanga endalaust í biðröð eftir tölvum er ég búin að eyða dágóðum tíma í að skoða vef bókasafnsins og þær bækur sem ég gæti notað.
Í öllu bókaflóðinu um lýðræðislega kennsluhætti sá ég titil sem mér fannst pínu fyndinn:
Hämodynamische Auswirkungen hochdosierter Naloxon-Gabe während kardiopulmonaler Reanimation beim Schwein
Hvort sem maður kann þýsku eða ekki hlýtur þessi titill að vekja lukku. Endalaus íðorð sem enginn skilur og svo í bláendann er minnst á hið mjög svo hversdagslega svín.
Fyrir þá sem hafa áhuga er bókin í augnablikinu inni á háskólabókasafni Freie Universität Berlin. Fyrstir koma, fyrstir fá!
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
ji…um hvað ætli þessi bók sé??
Hey!! Takk fyrir síðast! Langaði bara til að nota tækifærið til að þakka kærlega fyrir mig, frábær ferð, æææðisleg afmælisgjöf (belle og sebastian rúúla!!) og æðislegt að fá að eyða helginni og afmælisdeginum með þér!!