Allt að gerast

23 May 2006 | Rúna

Samkvæmt dagatalinu mínu er þriðjudagur í dag en í brjósti mér er sannkallaður mánudagur. Í gærkvöldi kláraðist nefnilega langþráð og skemmtileg helgi. Tvö Eurovision-partí, Belle & Sebastian-tónleikar og síðast en ekki síst bróðurdóttir sem kom alla leiðina frá Lundúnum til að veita grasekkjunni félagsskap og halda upp á afmælið sitt í Berlín.

Allt tókst þetta með endemum vel. Íslendingar fylgdust spenntir með Silvíu Nótt og drekktu sorgum sínum í alvöru íslensku brennivíni þegar í ljós kom að stúlkan færi ekki lengra. Svo bættu Finnarnir þetta upp með því að massa keppnina á laugardaginn. Eurovision verður ekki gerð nánari skil enda sýnist mér hún hafa fengið ítarlega umfjöllun á öðrum bloggsíðum.

Meira var lagt upp úr tónlistarlegum gæðum á Belle & Sebastian sem slógu algjörlega í gegn. Þau tóku eitthvað yfir 20 lög, voru skemmtileg og fyndin á milli laga, spiluðu gömul lög í bland við ný og róleg í bland við þau hressilegri, og stemningin í Columbiahalle var rosaleg.

En nú hefur hversdagsleikinn tekið við og það þykir ekki lengur við hæfi að drekka bjór og kokteila á daginn og fara á veitingahús á hverju kvöldi. Í staðinn reyni ég að koma mér aftur í námsgírinn við tölvuna og ætla að nota næstu 11 daga í skriftir og rólegheit.

Og eftir 11 daga?
Þá fæ ég Andrés heim.

4 Comments

  1. Alla said on 24 May 2006 at 10:38:

    Æ, það er gott að vita að þú heimtir Andrés brátt úr helju! Ég er farin að hlakka rosalega mikið til að koma í heimsókn í sumar, hlakka eiginlega meira til að sjá ykkur en Robbie ;o)

  2. sun said on 24 May 2006 at 12:55:

    Gott að heyra að þínir tónleikar hafi líka verið svona skemmtilegir. Bjóst svo sem ekkert við öðru..
    Heyrirðu ekki eitthvað frá Andrési? Er hann að fíla þetta í tætlur??

  3. sun said on 24 May 2006 at 12:55:

    Æi ég gleymdi að ljúka athugasemdinni minni á:
    “kveðjur frá skerinu”. ;)

  4. Ragnhildur said on 24 May 2006 at 16:15:

    oh já, ég er líka hálf pirruð að þessari helgi hafi þurft að ljúka…og það svona 2 vikum of snemma!!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.