Útskrift

24 May 2006 | Rúna

Nei, ekki mín útskrift, heldur fjögurra bandarískra vina minna.

Í gærkvöldi sat ég með tárin í augunum og horfði á vini mína, þau Ryan, Marissu, Seth og Summer útskrifast úr Harbour High. Tilfinningar þeirra voru jafn blendnar og mínar, þar sem við vissum öll að ákveðnum kafla í lífi þeirra væri lokið og alvara lífsins tæki við.

Fyrir um það bil einum og hálfum áratug síðan sat ég fyrir framan skjáinn og fagnaði með öðrum vinum mínum í Kaliforníu. Þetta voru þau Brenda, Brandon, Steve, Kelly, Dylan, Andrea, Donna og David sem voru að útskrifast úr Beverly Hills High. Stemningin var svipuð, gleði ríkti yfir því að þau væru loksins búin með High School en jafnframt voru litlu hjörtun þeirra full af óvissu og kvíða yfir að þurfa að yfirgefa fólk sem þeim var kært.

Ó já, lífið er hverfult, en einhvern veginn veitir það mér öryggiskennd í öllum þessum hverfulleika að vita að ég hafi ekki þróað smekk minn á sjónvarpsefni allt of mikið síðustu fimmtán árin.

3 Comments

  1. Ragnhildur said on 24 May 2006 at 16:16:

    ónei?! Eru þau útskrifuð? ég trúi ekki hvað ég hef misst af gjörsamlega allri þessari seríu! og ef þeir halda áfram með OC núna verður það bara leiðinlegt, alveg eins og gerðist með beverly hills :(

  2. Hrönn said on 24 May 2006 at 17:18:

    Ég get nú svekkt þig, tja eða glatt með því að Skjár 1 er að fara að byrja að sýna Beverly Hills 90210 frá byrjun!! Get ekki beðið eftir að verða aftur skotin í Brendan og Dylan… ómæ, það sem við dýrkuðum þessa þætti… En fegin er ég að ég er ekki eina gelgjan yfir 25 ára… OC og One tree Hill er bara best !!

  3. Linda said on 24 May 2006 at 21:51:

    Guð blessi sápuóperur, ég er mikill aðdáandi af Beverly Hills 90210 en á OC algjörlega eftir og get varla beðið eftir að sökkva mér í þann gleðigjafa.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.