Archives for June 2006

Enn af gullfiskum

25 June 2006 | molar | 3 Comments

Þetta fer bráðum að hljóma einsog rispuð plata, en maðurinn sem heldur alltaf að við séum frá öðru landinu sem er að spila hverju sinni á HM spurði okkur í gær hvort við værum Svíar.
Aftur.

Read ‘Enn af gullfiskum’

1000

23 June 2006 | molar | 3 Comments

Í gær voru 730 dagar liðnir frá því að við Andrés fluttum til Berlínar.
Í dag eru tvö ár, átta mánuðir og 27 dagar síðan við kynntumst.
Ekki sérlega merkilegt?
Í gær voru tvö ár liðin frá því að við Andrés fluttum til Berlínar.
Og í dag eru 1000 dagar síðan við kynntumst.
Svona er hægt að gera næstum hvern […]

Read ‘1000’

Maðurinn með gullfiskaminnið

22 June 2006 | molar | 2 Comments

„Eruð þið frá Hollandi,“  spurði hann okkur á kránni í gær. Væntanlega undir áhrifum leiks Hollands og Argentínu sem var akkúrat í gangi. Hann virtist mjög hissa þegar við sögðumst vera frá Íslandi. „Í alvöru?! Þið eruð fyrstu Íslendingarnir sem ég hitti.“
Daginn áður sátum við á sama stað þegar Svíar mættu Englendingum. Þá kom sami […]

Read ‘Maðurinn með gullfiskaminnið’

Fótboltinn og fyrirmennin

20 June 2006 | molar | No Comments

Í kvöld hefur tvennt komið mér á óvart. Annars vegar voru það fréttirnar eftir leik Þýskalands og Ekvador, þar sem okkur var tilkynnt að 700.000 manns hefðu safnast saman til að horfa saman á leikinn á breiðtjaldi við Brandenborgarhliðið. Mannfjöldinn er einfaldlega svo mikill að ég náði ekki að vinna úr honum.
Hinni þrumunni laust í […]

Read ‘Fótboltinn og fyrirmennin’

Blíða og berir rassar

16 June 2006 | molar | 3 Comments

Stemningin í dag er ósköp týpísk fyrir fólk sem var að koma heim úr fríi. Þvottavélin hefur vart undan við að þvo handklæði og bikiní, Andrés er svolítið brenndur á bringunni, ég öll út í mýflugnabitum og umfram allt erum við bæði ákaflega löt.
Já, það er rétt, við vorum að koma úr hálfgerðri sólarlandaferð. Ég […]

Read ‘Blíða og berir rassar’

Skallar á HM

9 June 2006 | molar | 4 Comments

Undanfarið hefur nýnasistum víst vaxið ásmegin í Berlín. Það vilja fjölmiðlar að minnsta kosti að við höldum — enda verður það til þess að “antifa” hreyfingin fer í fleiri göngur gegn nýnasisma. Allt til að fjölga fréttum.
Í fyrradag læddist bréf innum lúguna okkar þar sem okkur var tjáð að “glatzkopf” (krúnurökuðu útlendingahatararnir) hefðu skotið rótum […]

Read ‘Skallar á HM’

Íran kvatt

3 June 2006 | molar | 4 Comments

Hún var skondin, stemningin í flugvélinni sem tókst á loft frá flugvellinum í Tehran í nótt. Dekkin höfðu varla sleppt malbikinu þegar konurnar vörpuðu slæðunum, og þar með öndinni léttar.
Karlarnir biðu aðeins lengur með að bregðast við breyttum aðstæðum. Þegar flugfreyjurnar dreifðu morgunmatnum (einsog hjá Flugleiðum, ommeletta, en án skinkunnar) hrúguðust inn drykkjarpantanir. Bjór í […]

Read ‘Íran kvatt’

Ó þú…

2 June 2006 | molar | No Comments

Í gær lauk ég öðrum hluta mastersnámsins af þremur með því að halda kynningu á fjölmenningarlegu leikjunum mínum og standa fyrir svörum.
Á morgun fæ ég karlinn heim til mín.
Hvað er betur við hæfi en að láta 20 bestu lögin hans Magnúsar Eiríkssonar á fóninn og syngja hátt meðan ég tek til í íbúðinni?

Read ‘Ó þú…’