Skallar á HM

9 June 2006 | Andrés

Undanfarið hefur nýnasistum víst vaxið ásmegin í Berlín. Það vilja fjölmiðlar að minnsta kosti að við höldum — enda verður það til þess að “antifa” hreyfingin fer í fleiri göngur gegn nýnasisma. Allt til að fjölga fréttum.

Í fyrradag læddist bréf innum lúguna okkar þar sem okkur var tjáð að “glatzkopf” (krúnurökuðu útlendingahatararnir) hefðu skotið rótum í hverfinu okkar. Íbúar voru hvattir til að mæta á mótmælafund sautjánda júní til að sýna kónunum að svoleiðis væri ekki liðið hér um slóðir. Við verðum í grillveislu vegna þjóðhátíðar, þannig að mótmælin verða án okkar.

Í dag byrjaði heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu. Þar sem við eigum ekki sjónvarp fórum við á knæpu við húsið okkar til að fylgjast með á breiðtjaldi. Þrátt fyrir undangengnar fréttir kom dáldið flatt uppá okkur að allir (les: ALLIR) aðrir gestir staðarins væru krúnurakaðir, á mótorhjólum og með ýmiskonar tákn tengd norrænni goðafræði tattóveruð á sjálfa sig eða bróderuð á vestin sín. Við höfðum óvart ratað á einn af samkomustöðunum sem allir eru svo mikið á móti.

Til allrar hamingju marði Þýskaland sigur í leiknum, þannig að viðstaddir fengu útrás fyrir fagnaðarlátum með því að reykspóla mótorhjólunum sínum. Spurning hvort útlendingarnir á staðnum hefðu þurft að svara fyrir tap…

4 Comments

  1. Ragnhildur said on 10 Jun 2006 at 18:06:

    jeminn…stórhættulegt…mótórhjól eru til dæmis algjör slysagildra!
    flott nýtt lúkk á síðunni, bæ ðe vei!

  2. Linda said on 11 Jun 2006 at 13:05:

    hva eru þið ekki svo skemmtilega norræn, við eigum víst að vera uppáhaldsbörn Hilters svo ég held að þið hafi verið í góðum félagskap.

  3. Svenni said on 11 Jun 2006 at 16:52:

    Ég reikna með að þegar þið segið ALLIR þá séuð þið Rúna undanskilin. Eða hvað?

  4. tkfsasvu said on 1 Nov 2008 at 02:39:

    tkfsasvu…

    tkfsasvu…

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.