Blíða og berir rassar
16 June 2006 | Rúna
Stemningin í dag er ósköp týpísk fyrir fólk sem var að koma heim úr fríi. Þvottavélin hefur vart undan við að þvo handklæði og bikiní, Andrés er svolítið brenndur á bringunni, ég öll út í mýflugnabitum og umfram allt erum við bæði ákaflega löt.
Já, það er rétt, við vorum að koma úr hálfgerðri sólarlandaferð. Ég segi hálfgerðri, því sólarlandið var gamla góða Þýskaland og dvalartími ekki nema þrír dagar. Meðan Andrés var að spóka sig í Íran dundaði ég mér nefnilega við að leita að þýskri baðströnd á netinu og plana hagkvæmt og skemmtilegt ferðalag. Smábærinn Binz á eyjunni Rügen varð fyrir valinu. Þar er róleg og falleg baðströnd, miðbær fullur af brúnum gamalmennum og heill hellingur af sjávarréttaveitingastöðum.
Við gistum á voðalega fínu íbúðahóteli alveg við ströndina. Reyndar kom á daginn að sá hluti strandarinnar sem liggur við hótelið er ekki alveg að okkar smekk. Þegar ég steig í fyrsta sinn skælbrosandi í sumarkjólnum með strámottu í annarri hendi og sólvörn í hinni í heitan, hvítan sandinn blasti við mér ófögur sjón. Alls staðar voru allsber gamalmenni. Sama hvort þau voru buslandi í flæðarmálinu, hoppandi í strandblaki, liggjandi á vindsæng í sjónum eða bara í sólbaði – enginn var með svo mikið sem bút af sundfatnaði á sér. Við hrökkluðumst því nokkra metra til norðurs, þar sem var svokölluð “textíl-strönd”, sérhannað svæði fyrir steikur eins og okkur sem þora ekki að sýna ókunnugum á okkur rassinn.
Í þrjá daga ímyndaði ég mér að ég væri alls ekki í Þýskalandi heldur á Mallorca, og fór létt með það. Í dag brá mér heldur betur þegar lestin frá Binz renndi í hlað í borg sem ku vera Berlín en leit miklu frekar út fyrir að vera Stokkhólmur. Hér er nefnilega ekki þverfótað fyrir ungum ljóshærðum mönnum í gulum treyjum með gula og bláa fána vafða um brúna kroppana.
Þýskaland er Mallorca og Berlín er Stokkhólmur.
Þetta er heimurinn á tímum hnattvæðingar.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
haha…svona er evrópu…í reykjavík sér maður hins vegar alltaf bara það sem við er að búast…vond veður og fólk með fýlusvip!
Vona að þið hafið ekki fengið ykkur svana-sushi á Rügen þar sem eyjan sú er Mekka fuglaflensunnar í Evrópu.
Og Reykjavík er í Alaska og Húsavík í Frakklandi.
(var sko heima um helgina í sól og blíðu, er nú í borginni við hafið í grárri þykkri drullu sem liggur yfir öllu, grrr….)