Maðurinn með gullfiskaminnið

22 June 2006 | Andrés

„Eruð þið frá Hollandi,“  spurði hann okkur á kránni í gær. Væntanlega undir áhrifum leiks Hollands og Argentínu sem var akkúrat í gangi. Hann virtist mjög hissa þegar við sögðumst vera frá Íslandi. „Í alvöru?! Þið eruð fyrstu Íslendingarnir sem ég hitti.“

Daginn áður sátum við á sama stað þegar Svíar mættu Englendingum. Þá kom sami maður og spurði okkur hvort við værum sænsk. Ekki var hann minna hissa þá að frétta hvaðan við værum.

Í dag held ég að sé nokkuð ljóst hvað gerist ef við fylgjumst með Ástralíu keppa við Króatíu. Til öryggis ætla ég að æfa mig að segja „G’day mate! Let’s put another shrimp on the barbie!“

2 Comments

  1. sun said on 22 Jun 2006 at 13:50:

    Hahahaha…
    Ég hló upphátt.
    Takk.

  2. keinbetreff : Enn af gullfiskum said on 25 Jun 2006 at 12:12:

    [...] Þetta fer bráðum að hljóma einsog rispuð plata, en maðurinn sem heldur alltaf að við séum frá öðru landinu sem er að spila hverju sinni á HM spurði okkur í gær hvort við værum Svíar. [...]

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.