1000
23 June 2006 | Rúna
Í gær voru 730 dagar liðnir frá því að við Andrés fluttum til Berlínar.
Í dag eru tvö ár, átta mánuðir og 27 dagar síðan við kynntumst.
Ekki sérlega merkilegt?
Í gær voru tvö ár liðin frá því að við Andrés fluttum til Berlínar.
Og í dag eru 1000 dagar síðan við kynntumst.
Svona er hægt að gera næstum hvern dag að tyllidegi. Maður verður bara að nota réttar talningaraðferðir hverju sinni.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Til hamingju með þessa hátíðardaga!
Vona að þið gerið eitthvað húllumhæj við hæfi.
Í dag eru 30 dagar þangað til ég kem að heimsækja þig Rúna. Ég ætla að halda uppá það með því að fara í ísbíltúr.
…og í dag er “the first day of the rest of your life”….maður getur nú alltaf haldið uppá það!