Archives for July 2006

Óvænt fórnarlömb hitabylgju

29 July 2006 | molar | No Comments

Undanfarnar vikur hafa berlínskir hitamælar lítið farið undir þrjátíu gráðurnar. Þetta hef ég hægt og sígandi sætt mig við. Ég hef sætt mig við að vera alltaf sveittur utan dyra. Ég hef sætt mig við að lofthiti íbúðarinnar okkar fari aldrei niður í þær 20°C sem maður hefur vanist innan dyra.
Ég er hins vegar ekki […]

Read ‘Óvænt fórnarlömb hitabylgju’

Heima

25 July 2006 | molar | 2 Comments

Eftir góða tólf daga dvöl heima á Íslandi erum við nú snúin aftur heim til Berlínar. Hitastigið hér er jafn hátt og þegar við kvöddum borgina en að öðru leyti má sjá nokkra breytingu. Þegar við komum klyfjuð af flugvellinum í hverfið okkar tókum við strax eftir því að það sat varla nokkur hræða á […]

Read ‘Heima’

Íslandsferð

11 July 2006 | molar | 4 Comments

Öllum að óvörum stökkvum við yfir til Íslands á fimmtudaginn kemur. Stoppið verður ekki stutt, því við eigum ekki bókað far aftur til Berlínar fyrr en 25. júlí. Þeim sem hafa áhuga á heimsókn, kaffi eða bjór næstu tvær vikurnar er bent á að senda okkur línu.
Einnig er hægt að hafa samband í 896 4957.

Read ‘Íslandsferð’

Fánabullið

9 July 2006 | molar | 1 Comment

Má ég biðja fólk að hætta að éta vitleysuna upp hvert eftir öðru? Sama hvað hún hljómar vel. Þjóðverjar eru ekki að viðra fánann sinn í fyrsta sinn í sextíu ár. Kíkið bara á myndir af sameiningu þýsku ríkjanna 1990. Spyrjið hvaða Berlínarbúa sem er hvernig borgin leit út þegar bæði Tyrklandi og Þýskalandi gekk […]

Read ‘Fánabullið’

Gleðibankinn 2006

5 July 2006 | molar | 2 Comments

Þegar Icy-flokkurinn steig á stokk í Bergen ‘86 varð Ísland hljótt. Bílvélar þögnuðu, skip lágu við akkeri og kettir hættu að mjálma. Sama var uppá teningunum í gærkvöld, þegar Þjóðverjar mættu Ítölum í undanúrslitum HM (sem á þýsku kallast helmingsúrslit, í takt við fjórðungs- og áttungsúrslitin þeirra).
Við Rúna búum í frekar lifandi hverfi. Hér stöðug […]

Read ‘Gleðibankinn 2006’

WM II*

5 July 2006 | molar | 3 Comments

Ég hef nú aldrei verið mikill fótboltakall, en verð að viðurkenna að gott gengi (og góð spilamennska) þýska liðsins í HM hefur gert mig að heilmikilli bullu. Þessvegna þótti mér súrt í broti fyrir Þjóðverja að liggja fyrir Ítölum.
Kosturinn er samt sá, að í fyrsta sinn í tæpa sjö áratugi vorkennir heimsbyggðin Þýskalandi. Enda getur […]

Read ‘WM II*’

Andrés kennir útlendingum að veiða lunda

3 July 2006 | molar | 2 Comments

Um daginn fengum við Andrés svolítið skemmtilegt verkefni. Við vorum beðin um að vera prófessor innan handar meðan hann hélt fyrirlestur um íslensku. Þessi prófessor kennir námskeið um germönsk tungumál og tekur eitt fyrir í hverri viku. Honum finnst skiljanlega hálf asnalegt að bera fram orð á tungumáli sem hann kann ekki sjálfur svo hann […]

Read ‘Andrés kennir útlendingum að veiða lunda’