Andrés kennir útlendingum að veiða lunda
3 July 2006 | Rúna
Um daginn fengum við Andrés svolítið skemmtilegt verkefni. Við vorum beðin um að vera prófessor innan handar meðan hann hélt fyrirlestur um íslensku. Þessi prófessor kennir námskeið um germönsk tungumál og tekur eitt fyrir í hverri viku. Honum finnst skiljanlega hálf asnalegt að bera fram orð á tungumáli sem hann kann ekki sjálfur svo hann fær alltaf fólk sem talar viðkomandi tungumál í lið með sér til að sýna réttan framburð.
Ég hafði mig til fyrir “giggið” og Andrés fór í lundabolinn sinn til að vera svolítið þjóðlegur. Svo var okkur varpað í fyrirlestrasalinn fullan af áhugasömum málvísindanemendum.
Á daginn kom að minnstur hluti fyrirlestrarins fór í að útskýra íslenska tungumálið. Í staðinn spurði prófessorinn og nemendurnir okkur ótal spurninga um landið okkar og þjóð, verðlag og veðurfar. Andrés var spurður út í fallega litla fuglinn framan á bolnum hans og svaraði með því að halda stuttan fyrirlestur um það hvernig maður fangaði lunda. Með leikrænum tilþrifum og öllu. Nú heldur þetta fólk örugglega að Íslendingar upp til hópa næli sér í lunda á leiðinni heim úr vinnunni og sjóði í kvöldmatinn.
Við áttum ekki í sérlega miklum vandræðum með að svara fólkinu, enda fáum við vikulega sömu spurningarnar. “Hvað búa margir á Íslandi?” “Hvað kostar bjórinn mikið?” “Er það satt að allir Íslendingar trúi á álfa?”
En í lok tímans fengum við undarlegustu spurningu sem við höfum heyrt í langan tíma. Við höfðum verið að útskýra “dóttir” og “son” kerfið þegar stúlka á aftasta bekk rétti upp hönd og spurði:
“En hvernig er þetta með kynskiptinga? Breytast eftirnöfnin þeirra eftir aðgerðina?”
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
en gera þau það ekki? breytast eftir aðgerðina meina ég? vá, ég hef samt aldrei spáð í þessu…
Þetta er reyndar frábær spurning, en svarið er einfalt: Nafnið breytist auðvitað, sbr. Anna Kristjánsdóttir sem var eitt vélstjóri og var þá einhvers son.