WM II*

5 July 2006 | Andrés

Ég hef nú aldrei verið mikill fótboltakall, en verð að viðurkenna að gott gengi (og góð spilamennska) þýska liðsins í HM hefur gert mig að heilmikilli bullu. Þessvegna þótti mér súrt í broti fyrir Þjóðverja að liggja fyrir Ítölum.

Kosturinn er samt sá, að í fyrsta sinn í tæpa sjö áratugi vorkennir heimsbyggðin Þýskalandi. Enda getur varla nokkuð verra komið fyrir þjóð en að tapa á síðustu tveimur mínútum framlengingar.

Eins gott að ég splæsti ekki á mig 65 evru nærbol til að sýna stuðning minn við Þýskaland, heldur lét 3ja evru svitaband duga. Bolurinn hefði ekki dugað lengi.

* Í aumri tilraun til að finna titil reyndi ég að vinna saman enskt heiti seinni heimsstyrjaldarinnar (WW II) og þýskt heiti heimsmeistarakeppninnar (WM 2006).

3 Comments

  1. Linda said on 5 Jul 2006 at 01:37:

    Súrt að tapa en fyrir blessuðum Ítölum sem eru líklega leiðilegast fótboltlið heim, sívælandi. Ekki er annað að gera núna heldur en að vonast til þess að Portúgal vinni frakka, og rústi svo Ítalíu, annars er allt betra en Ítalía.

  2. Alla said on 5 Jul 2006 at 12:06:

    Sko. Portúgalar hafa ekki roð í Frakkana! Sástu ekki leikina á laugardaginn?
    Ítalir eru skemmtilegt lið, hæfileikaríkt á mörgum sviðum … líka leiksviðum!

  3. Mabbý said on 5 Jul 2006 at 13:10:

    Já þetta var mjög súrt…en skemmtilegur leikur, þó svo að það sé alltaf leiðinlegt að sjá fullorðna menn (í þessu tilfelli ítalska mömmustráka) liggja alltaf grenjandi á vellinum við minnsta tilefni….

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.