Fánabullið

9 July 2006 | Andrés

Má ég biðja fólk að hætta að éta vitleysuna upp hvert eftir öðru? Sama hvað hún hljómar vel. Þjóðverjar eru ekki að viðra fánann sinn í fyrsta sinn í sextíu ár. Kíkið bara á myndir af sameiningu þýsku ríkjanna 1990. Spyrjið hvaða Berlínarbúa sem er hvernig borgin leit út þegar bæði Tyrklandi og Þýskalandi gekk vel í HM 2002 — borgin var þakin fánum beggja landa.

Skoðið svo þessa mynd sem var tekin þegar þýska liðið snéri heim frá Ítalíu með heimsmeistaratitil í farteskinu 1990. Hvað eru margir fánar þarna?

wm90_empfang_i2.jpg

1 Comment

  1. harpa said on 25 Jul 2006 at 11:55:

    víst!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.