Heima

25 July 2006 | Rúna

Eftir góða tólf daga dvöl heima á Íslandi erum við nú snúin aftur heim til Berlínar. Hitastigið hér er jafn hátt og þegar við kvöddum borgina en að öðru leyti má sjá nokkra breytingu. Þegar við komum klyfjuð af flugvellinum í hverfið okkar tókum við strax eftir því að það sat varla nokkur hræða á gangstéttunum fyrir utan kaffihúsin, þar sem yfirleitt er ekki þverfótað fyrir fólki í flip-flops drekkandi límonaði og ískaffi. Ég hef þá kenningu að Berlínarbúar séu orðnir dauðþreyttir á þessum hita og svita og haldi sig nú innan veggja heimilisins með viftu í botni.

Hverfið hefur líka heldur betur breytt um svip síðustu tólf dagana eftir að menn fóru að draga niður þjóðfánana sem blöktu svo fallega meðan á HM stóð. Breiðtjöldin eru ekki lengur miðpunktur kaffihúsanna og enginn heyrist fótboltakliðurinn þegar maður gengur fram hjá. Eftir heilan mánuð af stífu fótboltaglápi finnst mér hálf undarlegt að hafa Berlín svona tuðrulausa og ég hef allt í einu voða mikinn lausan tíma. Kannski að ég geti meira að segja loksins farið að einbeita mér að mastersritgerðinni..

Já, við erum komin heim til Berlínar, en eftir aðeins tvo mánuði munum við ekki eiga heimili í Berlín lengur. Fyrir þá sem ekki vita er ferðinni nefnilega heitið til Brighton á Suður-Englandi í lok september þar sem við munum fara í mastersnám við University of Sussex. Það er skrýtin tilfinning að vera að kveðja Berlín. Fyrst þegar við vorum að spá í að flytja til Brighton hafði ég meira að segja hálfgert samviskubit af að vera að renna hýru auga til annarrar borgar en Berlínar. Nógu flókið er það samt að vera ástfangin af tveimur borgum í einu, Reykjavík og Berlín, án þess að sú þriðja bætist við.

En nú hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það er allt í lagi að þykja vænt um margar borgir samtímis. Í rauninni er Brighton kannski svolítill meðalvegur milli Reykjavíkur og Berlínar og ekki bara landfræðilega séð. Berlínskur andi og reykvískur smábæjarbragur í fiskifýlu og sjávargolu. Nokkuð fullkomið, verð ég að segja.

2 Comments

  1. sun said on 28 Jul 2006 at 17:39:

    Afskaplega gaman og notalegt að hitta ykkur um daginn:)

  2. Ágústa R. said on 4 Aug 2006 at 23:46:

    By popular request: Captain Drake, sem var frægur sjóræningi á 15. öld var fyrstur manna til að gera kokteil úr rommi og myntulaufum fyrir 500 árum. Það var ekki fyrr en um 1850 þegar Bacardi varð til að Mojito fæddist í þeirri mynd sem við þekkjum drykkinn. Mojito er þjóðardrykkur Kúbu en er á góðri leið með að verða það á Íslandi líka.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.