Óvænt fórnarlömb hitabylgju
29 July 2006 | Andrés
Undanfarnar vikur hafa berlínskir hitamælar lítið farið undir þrjátíu gráðurnar. Þetta hef ég hægt og sígandi sætt mig við. Ég hef sætt mig við að vera alltaf sveittur utan dyra. Ég hef sætt mig við að lofthiti íbúðarinnar okkar fari aldrei niður í þær 20°C sem maður hefur vanist innan dyra.
Ég er hins vegar ekki tilbúinn að sætta mig við þann hrylling sem mætti mér í kvöld. Viskíið sem Skotar hafa varið árhundruðum í að þróa á að drekka við skoskan stofuhita — ekki þrjátíuogeitthvað gráður.
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.