Skál í boðinu!
8 August 2006 | Rúna
Meðan fólkið á Íslandi fagnaði verslunarmannahelginni tókum við Andrés þátt í bjórmílunni, þriðja árið í röð. Það er ekki laust við að þessi blessaða hátíð sé farin að skipa jafn stóran sess í dagatalinu hjá manni eins og jól og páskar. Að minnsta kosti var frábært að þræða bjórtjöld, þýska skyndibitabása og hópa af Þjóðverjum með sítt að aftan og í krumpugöllum á ný.
Bjór mílunnar var að okkar mati Luther, þýskur miðaldabjór sem var framreiddur ísjökulkaldur í leirkrúsum. Ekki spillti fyrir að sölukonurnar voru klæddar í nunnubúninga.
Maður mílunnar hlýtur að vera Andrés, sem mætti klukkan eitt eftir hádegi og sat stöðugt að sumbli til miðnættis, eða þegar hátíðinni lauk, nánast án þess að sæist á honum.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Andrés er hörkukarl. Nokkrir lítar af bjór ná engan vegin að storka stóískri rónni.
haha, einmitt…allt í góðu þegar maður hefur massan rúnu til að halda á sér heim :)