Hóppóstar, eða ekki

20 August 2006 | Rúna

Bekkurinn minn í mastersnáminu er með svona grúppu á yahoo. Þannig er hægt að hafa samskipti á yahoo-síðunni eða senda tölvupóst á eitt ákveðið hópnetfang þegar þarf að hafa samband við alla. Þetta getur verið mjög hentugt fyrirkomulag. Til dæmis er ein stelpan voða samviskusöm og man alltaf eftir að senda á þetta netfang upplýsingar um að tími falli niður og þess háttar og svo er þetta fyrirtaks leið til að auglýsa bekkjarpartí (já, við höfum svoleiðis), kvikmyndakvöld og fleira.

Upp á síðkastið hefur hópnetfangið samt verið mér til ama frekar en hitt þar sem það hefur oftar en ekki verið misnotað hrikalega. Fólk er að ónáða mann með alls konar asnalegum spurningum sem ekki koma neinum við, senda skilaboð á allan hópinn þótt þau séu bara ætluð örfáum einstaklingum og – það allra versta – skrifa á spænsku!

Nú er ég manneskja sem stekk hæð mína í loft upp þegar ég heyri litla pípið í tölvunni sem gefur til kynna að ég hafi fengið póst. Mér þykir því afar hvimleitt að fá ruslpóst, hvort sem hann er um viagra, háskólagráður eða eftirlíkingar af úrum. En þessir spænsku póstar bekkjarfélaga minna eru það allra versta – þá veit ég að það er einhver að fá persónulegan og skemmtilegan póst. Það er bara ekki ég.

Í vikunni gerðist atburður sem mun kannski breyta því hversu frjálslega er farið með hópnetfangið. Ein bekkjarsystir mín skrifaði póst frá innstu hjartarótum þar sem hún lýsti því ítarlega hvernig sálfræðimeðferðin sem hún væri byrjuð í gengi. Pósturinn var vitanlega aðeins ætlaður einni úr hópnum, en greyið stelpan álpaðist til að senda hana á allan hópinn.

Ég finn ósköp mikið til með henni að hafa óvart sent þessar mjög svo persónulegu upplýsingar á 24 samnemendur sína, ritarann og aðalprófessorinn. En mikið óskaplega vona ég að héðan í frá aðgreini fólk einkapósta og hóppósta.

13 Comments

  1. Ágústa R. said on 21 Aug 2006 at 14:49:

    Átsj! Auuuuuuuumingja hún!

  2. fabiola-fv said on 29 Oct 2008 at 04:53:

    new site about porn

  3. fabiola-mc said on 9 Nov 2008 at 06:55:

    transvestite rockstar

  4. fabiola-dy said on 9 Nov 2008 at 13:13:

    bbr brakepedal

  5. fabiola-vm said on 9 Nov 2008 at 19:04:

    physicians in beverly hills michigan

  6. fabiola-iw said on 16 Nov 2008 at 03:40:

    transvestite rockstar

  7. fabiola-bp said on 16 Nov 2008 at 08:54:

    bbr brakepedal

  8. fabiola-on said on 16 Nov 2008 at 14:14:

    physicians in beverly hills michigan

  9. ellaela-ab said on 26 Dec 2008 at 13:44:

    zx10r graphics

  10. Albina-ed said on 1 Mar 2009 at 06:20:

    dating

  11. ellaela-ac said on 1 Mar 2009 at 06:21:

    find partner

  12. Armchair said on 28 Jun 2009 at 13:12:

    SnZvaI Armchair sightseeing, with links to many famous places and landmarks

  13. Armchair said on 29 Jun 2009 at 21:28:

    d6WSlq Armchair sightseeing, with links to many famous places and landmarks

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.