Archives for September 2006
Þjóðverjarnir við
28 September 2006 | molar | 2 Comments
Það er merkilegt að flytjast frá Þýskalandi til Englands og finna út að maður hefur náð að sía inn svolítinn Þjóðverja í karakterinn á þessum tveimur árum í Berlín.
Það kom kannski ekki sérlega á óvart að heyra að margir héldu að við værum frá Þýskalandi á leið okkar til Brighton, enda vorum við á bíl […]
Björk who?
26 September 2006 | molar | 4 Comments
Sú var tíðin að fólk sem við kynntumst og heyrði að við værum frá Íslandi tengdi landið umsvifalaust við Björk. Sumir gengu skrefinu lengra og nefndu Sigur Rós, örfáir kunnu skil á Múm.
Kanadíska nágrannakonan okkar af efri hæðinni sýndi okkur í gær að nú er öldin önnur. Það sem tengdi hennar huga við landið okkar […]
Komin
24 September 2006 | molar | 1 Comment
Rétt að rapportera örstutt. 1500 kílómetrum og einni viku síðar erum við Rúna flutt frá Berlín til Brighton. Hér skín sólin og háskólinn úthlutaði okkur huggulegri íbúð með sérgarði, þannig að við getum ekki kvartað. Næsta vikan fer í að kynnast University of Sussex og skila bílnum til Kölnar (vegna reglna bílaleigunnar borgar sig sumsé […]
Lagt í’ann
17 September 2006 | molar | 3 Comments
Þá erum við búin að koma öllum eigum okkar fyrir í Renault Scenic bílnum sem við leigðum. Tæknilega séð erum við því heimilislaus næstu vikuna, þegar við fáum íbúðina í Brighton afhenta. Í millitíðinni ætlum við að rúnta um Evrópu — gista hjá vínbónda í Móseldalnum og í litlu belgísku þorpi. Fyrsta stopp verður Bad […]
Málum bæinn… hvítan
15 September 2006 | molar | 512 Comments
Leigusalinn okkar vildi endilega að við skiluðum íbúðinni hvítmálaðri og hreinni þegar við flyttum út. Það óx okkur alltaf dáldið í augum þangað til núna — að verki loknu. Aldrei hefði ég trúað því að við Rúna (með dyggri aðstoð Marie, vinkonu okkar) þyrftum ekki nema dagstund til að sletta málningu á 50 fermetra íbúðina. […]
Flutningar
12 September 2006 | molar | 4 Comments
Það er allt að gerast á Dunckerstrasse 12. Heimilsmenn eru komnir á lappir árla dags og farnir að pakka, taka til og skrúfa sundur húsgögn. Í dag á að flytja húsgögnin til vina í Berlín og svo munum við mála íbúðina. Nú eru ekki nema um það bil fimm dagar eftir af Berlínardvöl okkar skötuhjúa […]
Rammstein
6 September 2006 | molar | 3 Comments
Það, að enginn sé spámaður í föðurlandi sínu, sannast á því hvað Þjóðverjar sýna hljómsveitinni Rammstein mikið fálæti. Áður en ég flutti til Berlínar hélt ég að þeir væru þýskari en allt sem þýskt er, en á þeim tveimur árum sem síðan eru liðin hef ég ekki heyrt eitt einasta lag með þeim. Þangað til […]
Sloppið með skrekkinn?
1 September 2006 | molar | 2 Comments
Fyrir þremur mánuðum sat ég í einni af fjórum Tupolev-154 flugvél íranska flugfélagsins Iran Air Tours frá Shiraz til Mashhad. Nú systurvél hennar komin í heimsfréttirnar fyrir að hafa brunnið í lendingu á flugvellinum í Mashhad, með þeim afleiðingum að tugir farþega létust.
Samkvæmt upplýsingum á netinu var skráningarnúmer vélarinnar EP-MCF. Á myndinni sem ég tók […]