Sloppið með skrekkinn?

1 September 2006 | Andrés

Fyrir þremur mánuðum sat ég í einni af fjórum Tupolev-154 flugvél íranska flugfélagsins Iran Air Tours frá Shiraz til Mashhad. Nú systurvél hennar komin í heimsfréttirnar fyrir að hafa brunnið í lendingu á flugvellinum í Mashhad, með þeim afleiðingum að tugir farþega létust.

Samkvæmt upplýsingum á netinu var skráningarnúmer vélarinnar EP-MCF. Á myndinni sem ég tók áður en ég steig um borð sé ég að stél minnar vélar er merkt EP-MCG. Það er ekki oft sem einn bókstafur skilur á milli feigs og ófeigs.*

* Til að gæta fyllstu nákvæmi skilur einn bókstafur, þrír mánuðir og önnur endastöðin á milli feigs og ófeigs, þannig að í rauninni var ég ekki í bráðri lífshættu.

2 Comments

  1. Elliði said on 2 Sep 2006 at 23:19:

    Svei mér heppinn!

  2. Ragnhildur said on 4 Sep 2006 at 20:58:

    uss…hugsa sér…..

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.