Flutningar
12 September 2006 | Rúna
Það er allt að gerast á Dunckerstrasse 12. Heimilsmenn eru komnir á lappir árla dags og farnir að pakka, taka til og skrúfa sundur húsgögn. Í dag á að flytja húsgögnin til vina í Berlín og svo munum við mála íbúðina. Nú eru ekki nema um það bil fimm dagar eftir af Berlínardvöl okkar skötuhjúa og ekki laust við smá tilfinningasemi, að minnsta kosti hjá öðru okkar. “Síðasta skiptið sem við sitjum í þessum sófa að kvöldlagi”. “Síðasta skiptið sem við vöknum í þessu rúmi”. Þetta þarf greyið Andrés að heyra daginn út og inn auk þess að vera látinn keyra sendibíl og bera þvottavél og aðra þunga hluti.
Það hefur oft verið sagt að fólk vaxi og þroskist þegar það býr í útlöndum um tíma. Nýverið fékk þessi pæling nýja merkingu í okkar huga. Andrés smellti sér í jakka sem hann notaði mikið þegar við fluttum til Berlínar en lítið síðan. Kom þá ekki bara í ljós að handleggirnir á húsbóndanum hafa vaxið um sirka 15 cm síðustu tvö árin!
4 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
kunnuglegt vandamál þetta með fötin :$
agalegt þegar þau skreppa svona saman í skápunum.
það er ótrúlega leiðinlegt að flytja frá Berlín.
Var vöxturinn á þverveginn eða lengdina?
Tek undir með þarsíðasta ræðumanni.
Gangi ykkur annars vel í flutningum og ég hlakka til að fylgjast með ykkur í nýju heimkynnunum.