Lagt í’ann

17 September 2006 | Andrés

Þá erum við búin að koma öllum eigum okkar fyrir í Renault Scenic bílnum sem við leigðum. Tæknilega séð erum við því heimilislaus næstu vikuna, þegar við fáum íbúðina í Brighton afhenta. Í millitíðinni ætlum við að rúnta um Evrópu — gista hjá vínbónda í Móseldalnum og í litlu belgísku þorpi. Fyrsta stopp verður Bad Karlshafen, sem virðist vera nokkurskonar Bláa lón Þýskalands. Þar getum við látið dekra við okkur á nuddbekkjum heilsuhælisins til að líkaminn gleymi málningar- og flutningavinnu síðustu daga…

3 Comments

  1. Alla said on 17 Sep 2006 at 14:34:

    Góða ferð!

  2. Lára said on 18 Sep 2006 at 14:30:

    skemmtið ykkur vel á ferðalaginu…sjáumst svo bara í brighton sem fyrst!

  3. Pibbý said on 20 Sep 2006 at 17:05:

    þetta hljómar sem ljóð í mínum eyrum. Ljúf hvítvínsdöggin í Mósel, og svo “Sighton”.. Við Sibbý erum grænar af öfund..!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.