Komin
24 September 2006 | Andrés
Rétt að rapportera örstutt. 1500 kílómetrum og einni viku síðar erum við Rúna flutt frá Berlín til Brighton. Hér skín sólin og háskólinn úthlutaði okkur huggulegri íbúð með sérgarði, þannig að við getum ekki kvartað. Næsta vikan fer í að kynnast University of Sussex og skila bílnum til Kölnar (vegna reglna bílaleigunnar borgar sig sumsé að ég keyri 700 kílómetra, auk þess að skutlast yfir Ermarsundið). Eftir viku hefjum við mastersnám.
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Munið bara að setja stýrið aftur vinstra megin í bílinn áður en þið skilið honum. Þjóðverjarnir myndu örugglega taka eftir því ef það væri ekki svo; alltaf svo nákvæmir.