Planet of the Students
6 October 2006 | Rúna
Háskólasvæðið okkar finnst mér afskaplega merkilegt. Það liggur örlítið fyrir utan borgina og er heill heimur út af fyrir sig. Ef Brighton sykki í sjó eða rigningu, sem kæmi mér ekki svo mikið á óvart eftir veðurfar síðustu daga, væri maður í góðum málum á háskólasvæðinu – þar er allt til alls.
Eftirfarandi aðstöðu hef ég séð á háskólasvæðinu: kennsluhúsnæði, skrifstofubyggingar og bókasafn (að sjálfsögðu), stúdentaíbúðir, kjörbúð, kaffiteríu, nokkra veitingastaði, tvo banka, ferðaskrifstofu, bókabúð, þvottahús, bíó, tvær líkamsræktarstöðvar, nokkur kaffihús og bari og – síðast en ekki síst – Body Shop!
Þegar við sóttum um húsnæði á vegum háskólans vissum við ekki hvort okkur yrði plantað á háskólasvæðið eða inni í Brighton og okkur var í sjálfu sér nokkuð sama. Eftir á að hyggja er ég óttalega fegin að hafa ekki verið sett á þessa stúdentaplánetu – jafnvel þótt það sé stutt í Body Shop.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Rúna! Vorum við ekki búnar að ræða þetta með Body Shop?
En líkamsræktirnar gætu verið góðar eftir allt bjórþambið í Berlín………..
Vinkona mín bjó á þessu háskólasvæði í 1 ár. Þá var campusnum skipt eftir “Í EU” og “Ekki í EU” ..Persónulega finnst mér það mjög undarleg skipting.. Kannski eins gott þið fenguð íbúð niður í bæ :)