Bjór, bjór…
23 October 2006 | Andrés
Mikið þótti mér skemmtilegur siðurinn sem þýsku prófessorarnir höfðu — að fara með nemendum sínum á bjórgarð í lok hvers námskeiðs. Á nýjum stað kynnist maður nýjum sið. Hér stendur deildin mín fyrir fyrirlestraröð, þar sem vikulegum fyrirlestrunum lýkur á því að allir fara á einn af stúdentabörunum “on campus” og fá sér kollu. Fyrir vikið er maður fljótur að kynnast prófessorunum náið, enda kjaftar á þeim hver tuskan á þriðja bjór…
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
oh hvað bekkurinn þinn er hressari en minn, okkur var bannað að koma með vín í jólamatinn því sumir voru viðkvæmir fyrir því. Hefði átt að velja mér annað fag
en já, þið haldið ykkur við löndin sem hafa bjórdrykkjumenningu :)