Nýir tímar
25 October 2006 | Rúna
Aldrei framar að standa í troðfullri matvöruverslun og reyna að ákveða í skyndi hvað skal hafa í matinn. Aldrei framar að rúlla á undan sér innkaupakerrunni gang eftir gang í leit að einhverju sem er uppselt. Aldrei framar að standa í biðröð við búðarkassann. Aldrei framar að telja saman smápeninga. Aldrei framar að raða í poka. Aldrei framar að burðast með níðþunga drykki og fyrirferðamiklar klósettrúllur í alls kyns veðri og vindum. Aldrei framar út í búð.
Við Andrés erum byrjuð að kaupa í matinn “online”.
3 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Oh hvað þið eruð eitthvað 21.öldin
Eina vitið, verið kvikind og pantið fullt af vatni.
Vá hvað þetta er töff!
Mig dreymir um að geta sleppt Bónus og bara hangið í tölvunni…