Brrrrrr
1 November 2006 | Rúna
Í gær montaði ég mig af því í símann til Íslands að haustið væri með endemum blítt í Brighton. Hitamælirinn sýndi 16 gráður og úti skein sólin eins og um hásumar. Í dag monta ég mig ekki. Nóvember beið ekki boðanna og lét okkur vita strax í morgun að hann væri mættur á svæðið. Þar sem ég stóð geispandi og skjálfandi á beinunum á baðherbergisgólfinu árla dags var ekki laust við að ég spyrði sjálfa mig: “Er verið að grínast í mér?”
Dagur í skólanum sýndi að svo var ekki. Háskólanemar voru upp til hópa sjokkeraðir yfir þessu skyndilega kuldakasti, sjúgandi hor upp í nef og súpandi kakó í allt of fáum fötum. Mikið held ég að ég hafi verið öfunduð vegna góðu íslensku lopapeysunnar sem hefur haldið á mér hita í þessum ósköpum.
Ég hef nú lúmskt gaman að því að veturinn sé genginn í garð. Hafgolan og blái himininn, gufan úr munninum á mér og köldu kinnarnar minntu mig nefnilega þægilega á haustdag í Reykjavík eins og þeir gerast bestir.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Það er búið að vera SKÍTA veður hérna í danmörku í allan dag. Kannski ekki algjört skítaveður á íslenskan mælikvarða, en samt alveg soldill vindur og hálf-lárétt snjókoma.
iss, ég á nú bágt með að trúa því að þessi svokallaði kuldi ykkar sé einu sinni undir frostmarki…eruði búin að gleyma haustslabbinu og næturfrostinu og ískalda rokinu og frostbitnu rauðu kinnunum???