Einróma

2 November 2006 | Rúna

Uppáhaldssjónvarpsþátturinn minn um þessar mundir er breskur raunveruleikaþáttur af bestu gerð – “Unanimous”. Nú hafa þáttagerðarmenn gengið alla leið við að gera niðurlægingu og þjáningu þátttakenda sem mesta, allt til þess að fólk eins og ég skemmti sér.

“Leikurinn” gengur út á það að níu manns er hrúgað niður í ógeðslegt neðanjarðarbyrgi þar sem húsgögnin eru eins og í fangelsi, málningin flögnuð af veggjum og þungt loft. Fólkið hefur ekkert tímaskyn, enda sjá þau hvorki klukku né dagsbirtu, og það borðar og sefur þegar rödd í hátalaranum segir þeim að gera svo.

Í verðlaun eru milljón pund. Og hvernig fer maður að því að vinna þau? Jú, nú kemur skemmtilegi hlutinn.  Til að einhver gangi út (eða upp) með summuna verða hinir að hafa tekið einróma ákvörðun um að sú manneskja eigi að vinna. Semsagt: ef maður ætlar einhvern tíma að sleppa úr þessu helvíti á jörðu verður maður annaðhvort að sættast á að láta einhverjum öðrum milljónina á eftir eða sannfæra alla hina um að maður eigi hana skilið frekar en aðrir.

Rúsínan í pylsuendanum: í lok síðasta þáttar byrjaði upphæðin að lækka með hverri sekúndu. 999,999, 999,998, 999,997… Ekki eins og það hafi ekki verið nógu mikil pressa samt.

Þetta verður skemmtilegur vetur.

2 Comments

  1. sun said on 4 Nov 2006 at 14:56:

    Sem mikill aðdáandi “raunveruleika”sjónvarps og sjónvarpsrusls almennt er þessi lesning mér næstum ofviða, þvílíkur er æsingurinn. Væri meira en til í að fylgjast með þessari gersemi.

  2. Sigga said on 14 Nov 2006 at 01:13:

    Á hvaða stöð er þetta??!!! Verð að tékka á þessu!!!

    Norwich biður að heilsa Brighton, yfir og út.

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.