Snakk og gourmet-snakk

8 November 2006 | Rúna

Ég skal vera fyrst manna til að viðurkenna það að ég er afskaplega ginnkeypt fyrir hvers kyns sölubrellum. Sérstaklega þegar kemur að kartöfluflögum sem eru í miklu úrvali hér. Ég skammast mín til dæmis ekkert fyrir það að punga út nokkrum pensum aukalega til að kaupa snakk með bragðinu “vintage cheddar & red onion chutney” í staðinn fyrir gamla góða “cheese & onion”. Það er bara svo miklu miklu betra að borða eitthvað sem heitir svona fansí nafni.

5 Comments

  1. sun said on 8 Nov 2006 at 17:20:

    Sammála, svo klárlega sammála. Og svo er svo gaman að smakka “nýtt” snakk sem jú, stundum er að vísu eitthvað nýtt.

    ps. hvenær er von á ykkur á skerið fyrir jól? þið komið, er það ekki?

  2. Ragnhildur said on 8 Nov 2006 at 19:47:

    iss, ég er nú oftast meira hrifin af gamla góða b-klassa snakkinu…

  3. Linda said on 9 Nov 2006 at 02:25:

    og ég er ennþá meira glötuð og vil bara Maxi pop

  4. Svenni said on 9 Nov 2006 at 15:18:

    Jamm, það slær fátt út Walkers snakk með salti og ediki. Bjórinn smakkast einfaldlega betur í bland við það.

  5. Sigga said on 14 Nov 2006 at 01:18:

    Hurru ekki ertu Magnússon á Skype, Andrés???? Af hverju fáum við upp Andrés Inga Magnússon þegar við sláum inn andresingi á Skype?

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.