Would you like a cup of tea?
20 November 2006 | Rúna
Auglýsingar í kvikmyndahúsum Brighton taka allt of langan tíma og ekki var laust við að við Andrés værum orðin heldur óþreyjufull að bíða eftir honum Borat í gær. Þó vakti ein auglýsingin heldur betur athygli okkar.
Hún kom frá bíóinu sjálfu, sem virðist vera að hvetja ólíka aldurshópa til að mæta á mynd. Sérstakt þema er í gangi fyrir unglinga, saumaklúbbskerlingar og – ótrúlegt en satt – nýbura og foreldra þeirra. Gamla fólkið fær líka einhverjar myndir við sitt hæfi.
Og hvernig á að lokka breska eldri borgara inn í kvikmyndahúsið?
Jú, tebolli og kexkaka fylgja með hverjum miða!
1 Comment
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
þessir bretar…..alveg kreisí!! Hvenær má ég koma í heimsókn? ekkert vit í því að vera sífellt hangandi hérna á íslandi, ekkert nema njór, kuldi og blautir sokkar!!