Ritstuldarvikan
22 November 2006 | Rúna
Í skólanum okkar er lögð ofuráhersla á hvað það er agalegt að fremja ritstuld. Eitt besta dæmið um það var síðasta vika sem hlaut nafnið “Plagiarism Week”. Ýmsar uppákomur voru skipulagðar til að kynna hugtakið og efla vitund fólks á því. Nemendur voru innilega hvattir til að taka þátt.
Íranski bekkjarbróðir minn svaraði aldeilis kallinu. Í fyrirlestri sínum um persnesku las hann upp tíu blaðsíðna ritgerð með fyrirsögnum og öllu í staðinn fyrir að tala út frá punktum eins og okkur hafði verið sagt að gera. Ég var alveg hissa á því hvað maður með svona takmarkaða enskukunnáttu virtist hafa mikið vald á því að setja mál sitt fram á greinargóðan og allt að því ljóðrænan hátt. Þangað til ég fann ritgerðina sem hann las upp í óbreyttu formi á netinu og komst að því að hún var eftir einhvern allt annan mann. Blessaður karlinn hafði ekki einu sinni haft fyrir því að breyta titlinum.
Þetta kallar maður nú að taka Ritstuldarvikuna með trompi.
5 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
HA HA HA HA HA HA!!!
Múhahaha, já þetta er alveg magnað. Ég treysti því að þú hafir gert stjórnendum skólans viðvart og látið reka þennan ósvífna Írana úr námi.
Uff greyði, ætli hann hafði ekki misskilið allt saman sökum lélegra málakunnáttu.
Vá… fyndið!!! Ég er forvitin, hvernig var tekið á þessu??
Sammála Lindu, þetta hefur örugglega verið rangur misskilningur hjá manninum!!!